Baunað á Jónas Má þvert á flokka - Vísir

Baunað á Jónas Má þvert á flokka - Vísir

Baunað á Jónas Má þvert á flokka - Vísir

Í fundargerð fundar bæjarráðs í gær segir að ný reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins hafi verið rædd og starfsfólk Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi flutt kynningu um málið fyrir bæjarráð.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega eftir að reglugerðin var sett og sakað hana um að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 2025.

„Með nýrri reglugerð hefur ríkið hins vegar einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið. Settar eru kerfislegar skorður sem útiloka börn frá aðgengi í viðeigandi úrræði þar sem ríkið stendur straum af kostnaði, þrátt fyrir mat sérfræðinga um þörf þeirra fyrir fjölþætta þjónustu,“ sagði í fréttatilkynnigu frá sambandinu í júní.

Staðfesti áhyggjur

Í fundargerðinni segir að þau Ásdís Kristjánsdóttir, Andri Steinn Hilmarsson, og Hjördís Ýr Johnson, Sjálfstæðisflokki, Orri Vignir Hlöðversson, Framsókn, María Ellens Steingrímsdóttir, Viðreisn, og Einar Jóhannes Guðnason, Miðflokki, hafi bókað á fundinum að þau þakki starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir greinargóða kynningu.

Kynningin staðfesti þær áhyggjur sem áður hafi komið fram í bæjarráði Kópavogs. Með reglugerðinni hafi ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem falla undir úrræði ríkisins, þvert á samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um að ríkið tæki yfir málaflokkinn að fullu leyti. Alvarlegast í þessu öllu sé að börnum, með fjölþættan vanda, sem áður fengust framlög með hafi nú verið hafnað. Þá hafi ráðuneytið staðfest að afmörkun reglugerðarinnar útiloki börn með þyngri og langvinnari þjónustuþarfir.

„Undirrituð telja þetta óásættanlegt og til þess fallið að grafa undan trausti sveitarfélaga í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Skorað er á ráðuneytið að standa við þá ábyrgð og skuldbindingar sem samið var um og tryggja að börn með hvað mestar og flóknastar stuðningsþarfir falli ekki milli kerfa.“

Getur ekki tekið undir með meirihlutanum

Þá bókaði Jónas Már og þakkaði sömuleiðis fyrir greinargóða kynningu og uppbyggilegt samtal.

„Hins vegar getur undirritaður ekki tekið undir bókun meirihlutans, sem þriðja bæjarráðsfundinn í röð dregur fram mál þetta til umfjöllunar. Fyrir liggur að ríkisstjórnin stígur inn í málaflokkinn með rúmlega þriggja milljarða króna framlag sem ekki var til skiptanna fyrir gerð samkomulagsins og án þess að frekari skyldur falli á sveitarfélögin aðrar en þær sem þegar voru við lýði við gerð samkomulagsins. Skýrt er kveðið á um þessa fjárhagslegu aðkomu ríkisins í samkomulaginu og við hana hefur verið staðið.“

Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé stórt skref í átt að varanlegri lausn í málaflokki sem hafi verið bitbein í meira en áratug. Samkomulagið kveði á um heildarendurskoðun málaflokksins sem standi enn yfir og starfshópur á vegum ríkis og sveitarfélaga sé að störfum, líkt og kveðið sé á um í samkomulaginu. Það liggi fyrir að reglugerðin sem um ræðir sé í virkri endurskoðun og að það sé vilji hjá ríkisstjórn til að styrkja áfram þjónustu við skjólstæðinga kerfisins og leiða þetta mál í jörð með sanngjarnri og eðlilegri skiptingu ábyrgðar milli ríkis og sveitarfélaga. 

„Pólitísk upphlaup eru ógagnleg innlegg inn í það samtal, líkt og undirritaður hefur áður bókað um á síðustu tveimur bæjarráðsfundum.“

Taki stöðu með ríkinu

Í annarri bókun allra annarra bæjarráðsmanna segir að Jónas Már hafi með bókun sinni tekið stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins. Í samkomulaginu frá 19. mars 2025 segi eftirfarandi: „Ríkið tekur að sér framkvæmd og ber ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimils, og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi, eigi síðar en 1. janúar 2026.“

Þarna sé í senn hvoru tveggja fjallað um framkvæmdina og fjármögnunina. 

„Að kalla gagnrýni allra bæjarráðsmanna, bæði í meiri- og minnihluta, fyrir utan fulltrúa Samfylkingarinnar, á stöðuna „pólitískt upphlaup“ stenst ekki skoðun. Það liggur fyrir að ríkið er ekki að standa við gerða samninga, bæði hvað varðar fjármögnun og framkvæmd, með því að setja ný og þrengri skilyrði en fólust í téðu samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um málaflokkinn.“

Í takti við vanstillta nálgun meirihlutans

Í annarri bókun segir Jónas Már að ummæli meirihlutans um að hann dragi taum ríkisins fram yfir hag bæjarins dæmi sig sjálf og séu í takti við annars vanstillta nálgun meirihlutans í málinu.

Kópavogsbær hafi enga höfnun fengið á grundvelli nýrrar reglugerðar. Reglugerðin hafi verið sett svo hægt væri að byrja að vinna eftir uppleggi samkomulagsins, þar sem ríkið leggi til ríflega þrjá milljarða í málaflokkinn án þess að sveitarfélögin taki á sig auknar skyldur. Við setningu reglugerðarinnar hafi legið fyrir að hún yrði áfram í endurskoðun og framkvæmd hennar vöktuð. Í samkomulaginu sé kveðið á um að það sé háð heildarendurskoðun á flóknu regluverki sem er í vinnslu. Af ummælum meirihlutans að dæma mætti ætla að hann kysi frekar að beðið hefði verið með nokkra aðkomu ríkisins, en á meðan hefðu sveitarfélögin áfram borið fulla ábyrgð á málaflokknum.

„Undirrituðum er ekki kunnugt um að bæjarráð hafi áður ályktað um algjört aðgerðarleysi síðustu ríkisstjórna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í málaflokknum, en hann telur það mikilvægt framfaraskref að núverandi ríkisstjórn komi að borðinu. Til þess að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga þurfa báðir aðilar að leggja sig fram við yfirvegað samtal. Það er ekki í hag íbúa Kópavogsbæjar að bærinn rýri trúverðugleika sinn í því samtali með ótímabærum upphrópunum.“

Sérstakt orðalag

Í þriðju og síðustu bókun hinna bæjarráðsmannanna segir að það skuli áréttað að fulltrúar fjögurra af fimm flokkum, úr meiri- og minnihluta, standi að fyrri bókunum. Þetta sé Jónasi Má vel kunnugt og í því ljósi sé orðavalið sérstakt og til þess fallið að villa um fyrir þeim sem lesa bókanir frá fundinum.

„Það sem liggur fyrir er að ríkið ákveður einhliða að setja nýja reglugerð, sem felur í sér ný og þrengri skilyrði, án aðkomu eða samþykkis sveitarfélaganna þrátt fyrir að annað hafi verið undirritað. Að mati undirritaðra er ekki um að ræða flokkapólitík heldur hagsmuni barna, fjölskyldna þeirra og sveitarfélaganna í landinu.“

Loks bókar Jónas Már eftirfarandi:

„Afstöðum undirritaðs og meirihlutans hafa verið gerð skýr skil í bókunum þessa fundar, sem og síðustu tveggja bæjarráðsfunda, þar sem meirihlutinn hefur dregið þetta mál fram til þess að bóka um það. Vísa ég til fyrri bókanna og tel ekki ástæðu til frekari málalenginga um þetta mál.“

#baunað #flokka #jónas #vísir #þvert


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924325d/baunad-a-jonas-ma-thvert-a-flokka

📰 Aðrar fréttir

Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
📅 24.11.2026 👁️ 0
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili ha...
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
📅 24.11.2026 👁️ 0
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
„Mín upplifun er að þetta sé svolítið rangur fréttaflutningur um Mjóddina. Hópamyndun ungmenna sem kemur fram í fréttunum á ekki heima hér inni í Mjód...
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
📅 24.11.2026 👁️ 0
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif Fréttin24. nóvember 2026Erlent, Heilbrigðismál, Rannsókn, TransmálLeave a...
Fears over the AI boom haven't gone away
📅 24.11.2026 👁️ 0
Fears over the AI boom haven't gone away
There were legitimate fears before Huang's abrupt exit from Nvidia - and his return won't fix it
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 0
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
Sprengjuhótanir bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi í gærmorgun einnig. Ríkislögreglustjóri hefur sagt að lögregla taki hótununum alvarl...
Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt í bæjarstjórn í dag. Áætlað er að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um rétt rúmar 344 ...
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
📅 24.11.2026 👁️ 3
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
Police are investigating a wedding company in Gran Canaria after a car was driven along the pedestrian promenade at Las Canteras beach in Las Palmas, ...
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
📅 24.11.2026 👁️ 2
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
Halldór Karl Halldórsson, lögmaður, er undrandi á að Guðmundi Ólasyni, fyrrverandi forstjóra, fái ekki réttlæti eins og aðrir í Milestone málinu, þrát...
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
📅 24.11.2026 👁️ 3
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
The sentencing brings a long-running legal battle to an end.
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
Erla Gerður Sveinsdóttir sérfræðilæknir í offitumeðferð ræddi þyngdarstjórnunarlyf í Reykjavík síðdegis. Þar segir hún miður að fólk sem þurfi ekki á ...
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
📅 24.11.2026 👁️ 3
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
Hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason þróuðu og hönnuðu samfélagsmiðilinn Alvildu sem ætlaður er fimmtán ára og eldri. Notendur skrá sig in...
Auglýsingatekjur hlaðvarpa margfaldast: „Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun“
📅 24.11.2026 👁️ 3
Auglýsingatekjur hlaðvarpa margfaldast: „Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun“
Auglýsingatekjur hlaðvarpa voru rúmlega hálfur milljarður króna í fyrra. Tekjur þeirra hafa aukist stöðugt frá 2018 og tæplega tífölduðust á milli 202...
Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“
📅 24.11.2026 👁️ 2
Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“
Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu um gervigreind á Alþingi, meðal annars til að ræða þátttöku Íslands í alþjóðlegu ákalli um öflug líkö...
Pip disability benefit review calls for closer link with claimant costs
📅 24.11.2026 👁️ 3
Pip disability benefit review calls for closer link with claimant costs
A government-commissioned report calls for a "rebalancing" of the amount paid to different claimants.
Mikill þrýstingur á Mette Frederiksen vegna ummæla um útskipti
📅 24.11.2026 👁️ 2
Mikill þrýstingur á Mette Frederiksen vegna ummæla um útskipti
Mikill þrýstingur er á Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur eftir að hún lét orð falla í viðtali sem túlka má sem daður við samsæriskenninguna...
Holiday Let owners in the Canary Islands face new 2027 deadline
📅 24.11.2026 👁️ 3
Holiday Let owners in the Canary Islands face new 2027 deadline
Owners of holiday rental properties in the Canary Islands have been given more time to complete an important administrative requirement, with a new de...
Dætur Frið­riks léku fyrsta leikinn á minningarmóti - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Dætur Frið­riks léku fyrsta leikinn á minningarmóti - Vísir
Friðrik Ólafsson sem lést á síðasta ári níræður að aldri var fyrsti Íslendingurinn til að verða stórmeistari, árið 1958. Hann varð sexfaldur Íslandsme...
Enn selji Danir okkur maðkað mjöl - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Enn selji Danir okkur maðkað mjöl - Vísir
Tilefnið er umfjöllun um danska hveitiframleiðandann Valsemøllen. Vísir greindi frá því fyrir helgi að ummerki eftir dýr og myglu hefðu fundist í korn...
Nvidia shares slide as Trump's role in Jensen Huang's comeback questioned by US politicians
📅 24.11.2026 👁️ 3
Nvidia shares slide as Trump's role in Jensen Huang's comeback questioned by US politicians
Nvidia's stock market value surged on the annoucement of Huang's reappointment, but some of the gains reversed in Tuesday trading.
US attorney general dodges questions about Nvidia investigation
📅 24.11.2026 👁️ 0
US attorney general dodges questions about Nvidia investigation
Nvidia's share price have fallen 7% as lawmakers demand answers about President Donald Trump's involvement in Huang's reinstatement.
Ertu að skera alls konar úr mataræðinu? - Ragnhildur ráðleggur þetta í staðinn
📅 24.11.2026 👁️ 3
Ertu að skera alls konar úr mataræðinu? - Ragnhildur ráðleggur þetta í staðinn
Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar....
Ráðuneytið segir allar umsóknir Vélfags hafa fengið efnislega meðferð
📅 24.11.2026 👁️ 3
Ráðuneytið segir allar umsóknir Vélfags hafa fengið efnislega meðferð
Utanríkisráðuneytið segir að allar undanþágubeiðnir fyrirtækisins Vélfags hafi verið teknar til efnislegrar meðferðar þrátt fyrir kvartanir fyrirtækis...
Hafa beðið í fjögur ár eftir brunabjöllu í tónlistarskóla
📅 24.11.2026 👁️ 4
Hafa beðið í fjögur ár eftir brunabjöllu í tónlistarskóla
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur falið skipulagsfulltrúa að koma brunavörnum við Tónlistarskóla Húsavíkur í viðunandi horf eftir að ábend...
French ex-President Nicolas Sarkozy and wife Carla Bruni to be tried next year
📅 24.11.2026 👁️ 4
French ex-President Nicolas Sarkozy and wife Carla Bruni to be tried next year
It is the latest case involving Nicolas Sarkozy who became the first French ex-president to go to jail last year.
Businesses supporting Ukraine told to 'act now' to protect against Russian sabotage
📅 24.11.2026 👁️ 3
Businesses supporting Ukraine told to 'act now' to protect against Russian sabotage
An alert issued on Tuesday warns of an increased risk of sabotage attacks such as arson and threats to staff.
Hætti við að játa morðið á Soham-morðingjanum - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Hætti við að játa morðið á Soham-morðingjanum - Vísir
Russell játaði fyrst að hafa orðið Huntley að bana en breytti frásögn sinni á öðrum degi réttarhaldanna. Samkvæmt Reuters sögðu sækjendur að Russell h...
Styr stendur um endurkomu forstjóra Nvidia
📅 24.11.2026 👁️ 4
Styr stendur um endurkomu forstjóra Nvidia
Bandarísk stjórnvöld þrýstu á endurráðningu forstjóra Nvidia, Jensen Huang, samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs. Þá er Trump talinn hafa hagnast á uppsveif...
Thelma Bergmann vill ekki framlengja samning Kópavogs um móttöku flóttafólks
📅 24.11.2026 👁️ 3
Thelma Bergmann vill ekki framlengja samning Kópavogs um móttöku flóttafólks
Thelma Bergmann Árnadóttir, áheyrnarfulltrúi Miðflokksins í velferðar- og mannréttindaráði Kópavogs, segir ekkert eiga að koma í staðinn fyrir samning...
'I'm proud of it': Killer confesses after murdering Ian Huntley
📅 24.11.2026 👁️ 4
'I'm proud of it': Killer confesses after murdering Ian Huntley
Triple murderer Anthony Russell said he planned to kill Ian Huntley and that he had "nothing to lose".
Major road projects in the Canary Islands face two-year delays
📅 24.11.2026 👁️ 4
Major road projects in the Canary Islands face two-year delays
Major road projects across the Canary Islands could face delays of up to two years if their environmental permits expire before construction gets unde...
Record 5,200 heat-linked deaths estimated in England this year
📅 24.11.2026 👁️ 3
Record 5,200 heat-linked deaths estimated in England this year
The UK Health Security Agency says this year's number of deaths is twice that of the previous record year.
Mikið þrumuveður vakti fólk úr fastasvefni
📅 24.11.2026 👁️ 4
Mikið þrumuveður vakti fólk úr fastasvefni
Íbúar á Selfossi og í næsta nágrenni urðu margir varir við miklar þrumur og úrhelli í nótt og vöknuðu einhverjir úr fastasvefni vegna hávaða í morguns...
Þorgerður Katrín: Þurfum að passa upp á EES-samninginn – ekki bara í orði heldur líka á borði
📅 24.11.2026 👁️ 3
Þorgerður Katrín: Þurfum að passa upp á EES-samninginn – ekki bara í orði heldur líka á borði
Stjórnarandstöðuflokkarnir hljóta að slást í lið með ríkisstjórninni við að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem tryggir þjóðinni eignarhald yfir a...
Syrgjandi móðir fékk enga miskunn - Algjör andlegur og líkamlegur vanmáttur eftir barnsmissi dugði ekki til
📅 24.11.2026 👁️ 3
Syrgjandi móðir fékk enga miskunn - Algjör andlegur og líkamlegur vanmáttur eftir barnsmissi dugði ekki til
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur vísað kæru konu, sem synjað var um greiðslur frá Vinnumálastofnun í sorgarleyfi, frá af þeim sökum að hún hafi bori...
Nær Kristersson loks að mynda stjórn?
📅 24.11.2026 👁️ 3
Nær Kristersson loks að mynda stjórn?
Ulf Kristersson, leiðtogi Moderatarna í Svíþjóð, hefur haft umboð til stjórnarmyndunar frá 3. nóvember. Í dag sagðist hann tilbúinn í að láta þingið g...
Ferðamenn eyða meira en fá minna fyrir peninginn en í fyrra
📅 24.11.2026 👁️ 3
Ferðamenn eyða meira en fá minna fyrir peninginn en í fyrra
Fjöldi ferðamanna það sem af er ári er svipaður og á sama tíma í fyrra, en samsetning þeirra er breytt, samkvæmt nýrri greiningu Landsbankans. Tæplega...
How innovation is transforming traditional retail industries
📅 24.11.2026 👁️ 4
How innovation is transforming traditional retail industries
The global economy is changing. The retail business always changes, improves, and adapts its practices. The ways stores stocked and displayed their in...
Southport survivors' parents 'disgusted' by school recovery funding
📅 24.11.2026 👁️ 3
Southport survivors' parents 'disgusted' by school recovery funding
Southport survivors' families are criticising disparities in school recovery funding.
Hinn vondi vitjaði páfans þrisvar - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Hinn vondi vitjaði páfans þrisvar - Vísir
Í færslu frá árinu 2021 lýsir páfinn heitinn því að kölski hafi birst honum þrisvar um lífsleiðina. Einu sinni í bíl, annað sinn í loftinu fyrir ofan ...
Hóta að hætta að styðja stjórnina vegna daðurs við sam­særis­kenningu - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Hóta að hætta að styðja stjórnina vegna daðurs við sam­særis­kenningu - Vísir
Frederiksen talaði um „mikil útskipti þjóðar“ í hlaðvarpsviðtali þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi þess að menning danskra „frumbyggja“ yrði áfram...
Former Civil Nuclear Constabulary chief inspector jailed for rape
📅 24.11.2026 👁️ 5
Former Civil Nuclear Constabulary chief inspector jailed for rape
Glen Mahony once worked with Wayne Couzens, who was convicted of the 2021 murder of Sarah Everard.
Snorri Másson vill sérstaka umræðu um gervigreind
📅 24.11.2026 👁️ 3
Snorri Másson vill sérstaka umræðu um gervigreind
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, kallaði í störfum þingsins á Alþingi í dag eftir dýpri umræðu um gervigreind. Hann sagði að Miðflokkurinn hefði...
Vilja koma Íslandi inn í Rúanda-samninginn
📅 24.11.2026 👁️ 4
Vilja koma Íslandi inn í Rúanda-samninginn
Sjö þingmenn Sjálfstæðisflokksins og jafnmargir þingmenn Miðflokksins standa saman að þingsályktunartillögu þar sem skorað er á dómsmálaráðherra að ka...
Alvarleg hópárás á feðga í Mjódd – nýtt myndefni vekur óhug
📅 24.11.2026 👁️ 4
Alvarleg hópárás á feðga í Mjódd – nýtt myndefni vekur óhug
Alvarleg hópárás á feðga í Mjódd – nýtt myndefni vekur óhug Fréttin24. nóvember 2026InnlentLeave a Comment Alvarleg líkamsárás á feðga í Mjóddinni í B...
Syria land mine casualties soar, two years after war
📅 24.11.2026 👁️ 4
Syria land mine casualties soar, two years after war
Nearly 1,000 children are among those killed or injured by explosives left over from the conflict, figures show.
Neitar að játa og segist ofsótt
📅 24.11.2026 👁️ 4
Neitar að játa og segist ofsótt
Aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris – hjálparsamtaka fyrir flóttafólk og hælisleitendur, fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í da...
Tories accuse Burnham of turning No 10 into 'joke' after influencer video row
📅 24.11.2026 👁️ 3
Tories accuse Burnham of turning No 10 into 'joke' after influencer video row
Social media influencer Max Balegde has deleted a video filmed outside the door of Number 10, which was posted on TikTok, in which he mimed along to e...
Landspítali tekur á­litið al­var­lega - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Landspítali tekur á­litið al­var­lega - Vísir
Læknafélag Íslands kvartaði til umboðsmanns Alþingis eftir að hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson var áminntur í starfi og vinnuframlag hans afþak...
Gústaf fluttur inn til Brynjars
📅 24.11.2026 👁️ 4
Gústaf fluttur inn til Brynjars
Gústaf Níelsson er fluttur inn til bróður síns Brynjars Níelssonar borgarfulltrúa tímabundið á meðan „hann er að íþyngja íslenska heilbrigðiskerfinu“ ...
Nadía Katrín og Gunnar selja í Stykkishólmi
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nadía Katrín og Gunnar selja í Stykkishólmi
Hjónin Nadía Katrín Banine og Gunnar Sturluson hafa sett íbúð sína í Stykkishólmi á sölu. Íbúðin er 158,3 fermetrar á 2. hæð ásamt bílskúr í tvíbýlish...