Neðri deild írska þingsins samþykkti í gær bann við innflutningi á vörum frá ísraelskum landtökubyggðum í Palestínu. Bannið nær til nokkurra landtökubyggða sem standa utan við alþjóðlega samþykkt landamæri Ísraels.
Bannið er fyrst og fremst táknræns eðlis. Verðmæti innflutnings frá umræddum svæðum, sem hefur að mestu verið ávextir, grænmeti og timbur, nam innan við milljón evrum á árunum 2020 til 2024.
Frumvarpið var samið af flokkum írsku ríkisstjórnarinnar. Þeir segja orðalag þess hafa tekið mið af ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins í Haag sem komst að þeirri niðurstöðu árið 2024 að hernám Ísraels á Vesturbakkanum, í Austur-Jerúsalem og á Gaza-ströndinni bryti í bága við alþjóðalög.
Írar hafa verið á meðal berorðustu gagnrýnenda Ísraels eftir að stríðið á Gaza hófst í október 2023, í kjölfar árásar Hamas-samtakanna á Ísrael. Írar viðurkenndu sjálfstæði Palestínu í maí 2024.
Stjórnarandstaðan segir frumvarpið ekki ganga nógu langt
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt frumvarpið sem bíður nú afgreiðslu efri deildar írska þingsins. Þeir segja frumvarpið ekki ganga nógu langt, ekki síst vegna þess að ekki er lagt bann við þjónustuviðskiptum.
Ríkisstjórnin segir að talsvert flóknara sé að banna þjónustuviðskipti en innflutning á vörum. Frumvarpið þurfi að vera lagalega pottþétt áður en það verður leitt í lög.