Írska lögreglan rannsakar nú morð á 43 ára bandarískri konu sem fannst látin á heimili sínu í bænum Killarney í Kerry sýslu á þriðjudag. Konan hét Jamey Carney, móðir 13 ára stúlku sem hafði búið á Írlandi undanfarin fimm ár.
Samkvæmt írsku lögreglunni var allt tiltækt lið kallað að húsinu síðdegis á þriðjudag eftir að dóttir Carney hafði áhyggjur af móður sinni og leitað til fjölskylduvinar. Sá hafði síðan samband við lögreglu sem kom á vettvang þar sem konan var úrskurðuð látin.
Irish Mirror segir hælisleitanda eftirlýstan
Írska blaðið Irish Mirror heldur því fram að lögreglan leiti nú hælisleitanda á þrítugsaldri vegna málsins. Samkvæmt blaðinu þekkti maðurinn Carney, hafi dvalið reglulega á heimili hennar og búið á móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd (IPAS) í Killarney.
Blaðið segir jafnframt að yfirvöld óttist að maðurinn reyni að yfirgefa landið og að umfangsmikil leit standi yfir. Samkvæmt umfjöllun Irish Mirror hafi hann áður búið í Frakklandi og sótt um alþjóðlega vernd á Írlandi um mitt ár 2024.
Talið að árásin hafi átt sér stað um nóttina
Irish Mirror hefur einnig eftir heimildum sínum að Carney hafi orðið fyrir grófri líkamsárás og hlotið alvarlega höfuðáverka. Samkvæmt blaðinu er talið er að árásin hafi átt sér stað seint á mánudagskvöld eða aðfaranótt þriðjudags.
Heimildir blaðsins segja jafnframt að nágrannar hafi heyrt rifrildi á heimilinu um nóttina og að konan hafi hugsanlega legið látin í nokkrar klukkustundir áður en hún fannst.
Lögreglan hefur ekki staðfest þessar upplýsingar opinberlega. Í tilkynningu frá lögreglu segir aðeins að kona á fertugsaldri hafi fundist látin á heimili sínu og að rannsókn standi yfir til að upplýsa dánarorsök hennar.
Þekkt í nærsamfélaginu
Carney var upprunalega frá New York í Bandaríkjunum en hafði búið í Killarney um árabil. Hún var þekkt í samfélaginu og tók meðal annars þátt í starfi stuðningshóps Palestínu á svæðinu.
Sveitarstjórnarmenn í Killarney hafa hvatt alla sem kunna að búa yfir upplýsingum til að hafa samband við lögreglu.
Lögreglan hefur óskað eftir vitnum sem voru á Muckross Road í Killarney frá kvöldi 6. júlí fram á síðdegi 7. júlí. Sérstaklega er óskað eftir upptökum úr eftirlitsmyndavélum og mælaborðsmyndavélum sem gætu varpað ljósi á ferðir fólks eða ökutækja á svæðinu.