Loftvarnarflautur ómuðu um Persaflóaríkið Barein í nótt eftir að íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa gert árás á bandaríska herstöð í landinu. Innanríkisráðuneytið hvetur almenning til stillingar og að halda sig í öruggu skjóli.
Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjanna, segir árásirnar á Íran hafa verið í réttu hlutfalli við ástæður þeirra og hafi verið viðbragð við „óréttlætanlegri yfirgangssemi“ Írana.
Johnson kveðst hafa verið viðstaddur þegar Donald Trump forseti og fleiri háttsettir embættismenn ákváðu að láta til skarar skríða. Þeirra á meðal voru varaforsetinn, utanríkis- og varnarmálaráðherra. „Við hörmum að hafa þurft að grípa til þessara aðgerða, en þær voru nauðsynlegar,“ sagði Johnson við blaðamenn í þinghúsinu.
Bandaríkjaher kveðst hafa lokið öllum aðgerðum sem gerðar hafi verið í sjálfsvarnarskyni gegn Íran.
Miðstjórn hersins í Mið-Austurlöndum greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum X og sagði orrustuþotur flug- og sjóhers hafa gert „nákvæmnisárásir“ á loftvarnarkerfi Írana, stjórnstöðvar á jörðu niðri og ratsjárstöðvar við Hormússund.
Bandaríkjaher hefur að nýju gert árásir nærri Hormússundi eftir að íranskir fréttamiðlar sögðu allt orðið með kyrrum kjörum eftir þungar árásir fyrr í kvöld. Bandaríkjaforseti sagði þær atlögur gerðar í hefndarskyni fyrir að bandarísk herþyrla var skotin niður yfir sundinu í gær. Íranar segjast ekki hafa verið þar að verki.
Íranskir miðlar segja sprengingar hafa kveðið við á Qeshm-eyju og í hafnarborginni Bandar Abbas. Íranski byltingarvörðurinn segist á móti hafa gert árásir á bandaríska herstöð í Barein.
Velkomin á þessa fréttavakt. Ég heiti Markús Þórhallsson og fylgist með framvindu mála í nótt.