Bandaríkjaher stöðvaði för olíuflutningaskips í Ómanflóa í kvöld með því að skjóta á það. Herinn sakar áhöfn skipsins um að hafa ætlað að fara á svig við hafnbann Bandaríkjanna á íranskar hafnir.
Tim Hawkins, talsmaður stjórnstöðvar hersins, segir við AFP-fréttaveituna, að áhöfnin hafi ítrekað verið vöruð við því að rjúfa bannið. Hún hafi ekki fylgt fyrirmælum og herinn því skotið á vélarrúm skipsins.
Hawkins segir við New York Times að hann hafi fengið upplýsingar um að einhverjir í áhöfninni hafi særst en að hann geti ekki staðfest það.
Trump ræðir um harðari árásir
Síðustu tvær vikur hafa Bandaríkin ráðist á Íran daglega með það fyrir augum að veikja getu Írana til að ráðast á kaupskip sem sigla um Hormússund sem liggur á milli Persaflóa og Ómanflóa.
Donald Trump Bandaríkjaforseti fundaði með hátt settum ráðgjöfum sínum í dag til að ræða hvort herða ætti árásir á Íran. Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum sínum. Í frétt miðilsins er haft eftir írönskum embættismönnum að stjórnvöld í Tehran hafi hafnað nýrri vopnahléstillögu Trumps á fimmtudag. Ali al-Zaidi, forsætisráðherra Íraks, kom tillögunni áleiðis til Írana.