Aðgerðarstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) segir í færslu á X að Bandaríkin hefji nú öflugar árásir á Íran sem hefndaraðgerð við árásum Írana á þrjú skip á Hormússundi í dag. „Yfirgangssemi Írans var tilefnislaus, hættuleg og skýrt brot á vopnahléinu,“ segir í færslunni.
U.S. Central Command forces have begun launching a series of powerful strikes against Iran to impose heavy costs for targeting and attacking commercial shipping crewed by innocent civilians in an international waterway. The U.S. strikes are in response to Iranian attacks on three…
— U.S. Central Command (@CENTCOM) July 7, 2026
Í kjölfar árásanna afturkallaði Bandaríkjastjórn sextíu daga undanþágu fjármálaráðuneytisins frá refsiaðgerðum íranskrar olíu. Undanþágan var hluti af bráðabirgðasamkomulagi um endalok átakanna á milli Bandaríkjanna og Íran.
Að sögn Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar hafa ekki fleiri árásir verið gerðar á siglingarleiðina síðan í apríl. Ríki heimsins höfðu vonast eftir því að skipaflutningar um Hormússund færu brátt í eðlilegt horf en árásirnar ógni þeirri von, segir í umfjöllun AP.