Banaslys í Skorradalsvatni

/home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 225
/" alt="Banaslys í Skorradalsvatni" class="single-image">

Lögreglan á Vesturlandi biðlar til húseigenda í frístundabyggðum Skorradals um að yfirfara myndefni úr öryggismyndavélum vegna banaslyss í gær. Frá þessu er greint í Facebook-færslu Lögreglunnar á Vesturlandi.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu og björgunarsveita við leit að kajakræðara um kvöldmatarleytið þegar hann hafði ekki skilað sér til baka. Hann fannst látinn við fjöruborðið norðan megin í vatninu.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins og veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var viðkomandi Íslendingur.

Lögreglan á Vesturlandi biðlar til húseigenda í frístundabyggðum Skorradals um að yfirfara myndefni úr öryggismyndavélum sem snúa að Skorradalsvatni á tímabilinu klukkan 15:30 til 19:00 í gær.

#banaslys #skorradalsvatni


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-30-banaslys-i-skorradalsvatni-474059

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260