Banaslys varð rétt austan við Vík í Mýrdal í gær. Ökumaður bifhjóls var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir að árekstur varð á milli bifhjólsins og bifreiðar.
Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu.
Lögregla, tæknideild lögreglu, sjúkraflutningaliðar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, slökkvilið Mýrdalshrepps og þyrla Landhelgisgæslunnar komu að vettvangi slyssins.
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar slysið.