Baldur Örn Gylfason stendur frammi fyrir klassísku vandamáli miðaldra manns í nýjasta þætti Menn eins og við: Hann er búinn að finna græjuna, en hefur ekki hugmynd um hvernig hann á að koma henni heim. Baldur er loksins að verða búinn að klára húsið og garðinn. Þá vantar auðvitað bara eitt: púlborð.Hann hefur meira að segja fullkomið leikherbergi fyrir það og innanhússhönnuðurinn hafði frá upphafi teiknað púlborð inn í rýmið. Baldur fann síðan notað borð hjá Efnisveitunni og allt virtist vera að smella saman.
Baldur þarf púlborð – „Nú þarf bara að finna einhvern sem kann að flytja 600 kílóa fílsunga inn í hús“