Ferjan Baldur mun sigla til og frá Vestmannaeyjum meðan ástandið í Landeyjahöfn varir eins og segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Baldur mun leggja af stað núna, fimmtudagsmorgun, en tíma tekur að sigla til Vestmannaeyja.
Reiknað er með að Baldur hefji siglingar á föstudagsmorgun. Ferðir Baldur yfir Breiðafjörð falla niður á meðan.
Nánari upplýsingar um siglingaáætlun verður gefin út af Herjólfi ohf. um leið og hún liggur fyrir. Ekki er útlit fyrir vegna veðurs og sjólags að hægt verði að hefja dýpkun fyrr en á föstudag. Horfurnar til dýpkunar eru ágætar næstu daga á eftir.