Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild - Vísir
24.04.2026 11:59:22
👁️ 0 lesið
Edvinas Geležinis, starfsmaður dótturfélagsins í Litáen, birti á dögunum starfsauglýsingu á
viðskiptasamfélagsmiðlinum Linkedin á dögunum, þar sem hann auglýsir eftir sérfræðingum í viðhaldsstjórnun (CAMO), sérfræðingum í viðhaldsáætlanagerð og sérfræðingum í viðhaldsgagnastjórnun.
Engum sagt upp og ekki liggi fyrir hversu margir varða ráðnir
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir að auglýsingin er á vegum dótturfélagsins, í svari við fyrirspurn Vísis.Markmiðið með stofnun dótturfélagsins sé fyrst og fremst að styrkja og þróa leiguverkefni félagsin og aðgreina þau betur frá öðrum verkefnum Icelandair. Unnið sé að endurskipulagningu deildarinnar sem sinnti þessum verkefnum ásamt öðrum en engum hafi verið sagt upp í tengslum við stofnun dótturfélagsins. Unnið sé að því að setja upp skipulag félagsins í Vilníus og því liggi hvorki fyrir á þessum tímapunkti hversu margir munu starfa hjá því né í hvaða hlutverkum.
Fimmtán á fyrsta starfsárinu
Invest Lithuania, stofnun sem vinnur að því að laða erlenda fjárfestingu til Litáen, greindi í gær frá áformum Icelandair í Vilníusi. Þar er haft eftir áðurnefndum Geležinis að skrifstofa dótturfélagsins verði opnuð í maí og til standi að ráða fimmtán starfsmenn á fyrsta starfsárinu.„Í Litáen er sterk flugmenning og djúp tækniþekking sem erfitt er að finna annars staðar á svæðinu. Við sjáum hér frábær tækifæri til að styðja við Icelandair og viðskiptavini þess um allan heim og til að auka enn frekar þjónustu okkar við þriðju aðila án þess að trufla kjarnastarfsemi flugfélagsins,“ er haft eftir honum.
#endurskipuleggja
#sérfræðingum
#auglýsa
#litáen
#eftir