Atvinnuleysisbótatímabil styttist úr 30 mánuðum í 24 samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Alþingi í dag. Upphaflega stóð til að stytta þann tíma sem fólk getur þegið atvinnuleyisbætur í 18 mánuði en sex mánuðum var bætt við í meðförum þingsins.
Frumvarp um miðlægan gagnagrunn yfir nemendur í grunn- og framhaldsskóla var einnig samþykkt. Með honum fá skólayfirvöld yfirsýn um skólavist, mætingu og námsferil barna.
Loks var samþykkt frumvarp fjármálaráðherra um að laun æðstu ráðamana hækki um 3,5 prósent í júlí en ekki 9,7 prósent eins og þau hefðu gert að óbreyttu.
Gert er ráð fyrir að þingstörfum þennan veturinn ljúki síðar í vikunni.