Átta börn hafa verið skotin til bana á mismunandi heimilum í Shreveport í Louisiana í Bandaríkjunum. Þetta hefur fréttastofa AP eftir lögreglustjóranum Wayne Smith. Tvær konur eru jafnframt illa særðar.
Lögregla veitti árásarmanninum eftirför og hann var felldur.
Börnin voru á aldrinum eins árs til fjórtán ára. Þau voru skotin til bana á þremur mismunandi stöðum og sum þeirra eru sögð hafa tengst árásarmanninum fjölskylduböndum.
Lögreglan telur heimiliserjur hafa leitt til árásarinnar og að maðurinn hafi verið einn að verki.
Fréttin hefur verið uppfærð.