Rúmlega áttatíu prósent Íslendinga segjast ætla eða hafa áhuga á því að fylgjast með almyrkvanum á sólu þann 12. ágúst. Flestir, eða rúm 43% svarenda spurninga Ferðamálastofu í spurningavagni Gallup, segjast ætla að fylgjast með almyrkvanum frá heimili sínu eða næsta nágrenni en rúm 6% hyggja á ferðalag til að sjá myrkvann. Tæplega 33% segjast hafa áhuga á því að fylgjast með almyrkvanum en hafa þó ekki ákveðið hvort eða hvaðan fylgst verði með. Um 15% ætla ekki að fylgjast með sólmyrkvanum.
Áhuginn er mestur meðal íbúa Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaga, þar sem 90% fólks sýnir almyrkvanum áhuga, samanborið við 73% íbúa annarra sveitarfélaga. Reykvíkingar virðast þó heldur óákveðnari en íbúar nágrannasveitarfélaganna. Í Reykjavík segjast aðeins 38% íbúa ákveðin í að fylgjast með almyrkvanum. Meðal nágrannasveitarfélaganna er hlutfallið 61%.
Konur hafa meiri áhuga á almyrkvanum en karlar. Um 85% kvenna segjast ætla eða hafa áhuga á því að fylgjast með en 78% karla. Þá er langmesti áhuginn hjá yngsta aldurshópnum, 18–29 ára. Í þeim hópi eru fleiri en níu af hverjum tíu sem ætla eða hafa áhuga á að fylgjast með almyrkvanum.
Spurningarnar voru lagðar fyrir 18. –30. júní. Úrtakið var 2.296 einstaklingar, 18 ára og eldri og var svarhlutfallið 34,9%.