Atli Viðar Þorsteinsson, plötusnúður, birti í gær áhrifaríka færslu á Facebook, sem hann gaf DV góðfúslega leyfi til að deila. Færslan hefur vakið mikla athygli og margir hrósað Atla Viðari fyrir hugrekkið og heiðarleikann að deila reynslu sinni.Í færslunni segir Atli Viðar hafa lesið einhvern tíma setninguna: „Lífið er ömurlegt núna en þú einfaldlega getur ekki vitað hvernig það verður eftir 5 ár“ á umræðuvefnum Reddit í /askreddit þræði undir yfirskriftinni: „Þið sem hafið pælt í að fremja sjálfsmorð, hvers vegna hættuð þið við?“
Atli Viðar: „Líðan mín núna er svo mörgum ljósárum frá þessari tilfinningu sem ég fann þarna um nóttina“