Ástríður Noregsprinsessa er látin, 94 ára að aldri. Hún var önnur tveggja systra Haraldar Noregskonungs, sem andaðist fyrir skömmu. Öll börn Ólafs V Noregskonungs og Mörtu krónprinsessu eru því látin. Ragnhildur prinsessa lést árið 2012.
Aðeins tveir dagar eru síðan Ástríður fylgdi bróður sínum, Haraldi Noregskonungi til grafar. Þau voru afar náin.
Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að norska fánanum verði flaggað við hálfa stöng það sem eftir lifi dags.
Fréttin verður uppfærð.