Allt bendir til þess að Icelandair verði rekið með tapi á þessu ári nema eitthvað mikið breytist.
Þetta er mat Konráðs S. Guðjónssonar hagfræðings og ráðgjafa hjá Kontext og Reitun. Segir hann ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu Icelandair í ljósi tapreksturs félagsins undanfarin ár og ekki sé vinnudeila flugmanna félagsins við fyrirtækið til þess fallin að auka bjartsýni um framhaldið að óbreyttu.
Gengi félagsins leki sífellt niður á við og kveðst hann halda að markaðsvirði fyrirtækisins samsvari rétt rúmlega einni nýrri Airbus XLR-flugvél.
Lesa má nánar um málið á bls. 6 í Morgunblaðinu í dag