Það getur tekið nokkra mánuði að greina nákvæma orsök þess að ökuþórinn George Russell hjá Mercedes féll úr keppni í Formúlu 1-kappakstrinum í Kanada fyrir rúmlega tveimur vikum.
Russell var í forystu þegar bilun í vélarbúnaði neyddi hann til að hætta keppni. Bilunin gerði liðsfélaga hans, Kimi Antonelli, kleift að vinna sinn fjórða sigur í röð.
Tæknistjóri Mercedes, James Allison, sagði að orsökin hafi verið alvarleg bilun í rafhlöðu sem stöðvaði vélina þegar um þriðjungi var lokið af keppninni.
Aðstoðarliðsstjórinn Bradley Lord sagði að bifreiðin hafi þurfi að fara í gegnum sérstakar öryggisráðstafanir áður en hún verði send til Bretlands til frekari rannsóknar.
Vegna þess hve ítarleg rannsóknin er gæti liðið ekki fengið endanlega staðfestingu á orsökinni fyrr en eftir nokkra mánuði. Mercedes mun jafnframt greina gögnin til að koma í veg fyrir að sambærileg bilun endurtaki sig.
Eftir atvikið er Russell 43 stigum á eftir Antonelli í heimsmeistarakeppni ökumanna fyrir kappaksturinn í Monakó um næstu helgi.