Sýrlenskur dómstóll dæmdi í morgun Bashar al-Assad, fyrrverandi einræðisherra landsins, til dauða fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi 2011 til 2024. Hann var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna.
Meðal þeirra glæpa sem Assad var dæmdur fyrir voru morð af yfirlögðu ráði, þar á meðal á börnum undir 15 ára, pyntingar sem leiddu til dauða og mörg tilfelli frelsissviptingar.
Þetta er fyrsti dómurinn sem fellur eftir að bráðabirgðastjórn tók við völdum í landinu.
Assad flúði ásamt fjölskyldu sinni til Rússlands eftir að honum var steypt af stóli í desember 2024. Þá hafði hann setið í embætti í nærri aldarfjórðung. Hann tók við stjórnartaumunum eftir andlát föður síns sem hafði stjórnað Sýrlandi með harðri hendi í nærri þrjá áratugi.
Stjórnartíð Assads einkenndist af borgarastyrjöldinni sem hófst eftir arabíska vorið. Þá þyrptust Sýrlendingar út á götur landsins og kröfðust lýðræðis. Mótmælum þeirra var mætt af hörku.
Talið er að yfir 650 þúsund hafi fallið í borgarastyrjöldinni, þar af hátt á þriðja hundrað þúsund almennra borgara. Rúmlega 13 milljónir Sýrlendinga lögðu á flótta.
Í morgun var Atif Najib einnig dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyni. Hann er frændi Assads og stýrði öryggissveitum hans í Daraa-héraði þar sem uppreisnin gegn Assad hófst. Najib var handtekinn í janúar. Hann var sakfelldur fyrir að hafa drepið börn undir 15 ára aldri og fyrir að pyntingar sem drógu fólk til dauða.