Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, gleðst yfir fyrstu tölum þaðan.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi í Kópavogi og fær 45% atkvæða og meirihluta bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum. Ef þetta gengur eftir er Sjálfstæðisflokkurinn að fá sína bestu kosningu í Kópavogi síðan 2006.
„Ég er auðvitað bara stolt og meyr yfir þessum tölum,“ segir Ásdís. „Þetta eru fyrstu tölur, við verðum auðvitað að vera með varnagla á því.“
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,3% atkvæða fyrir fjórum árum. Það dugði honum til fjögurra fulltrúa í bæjarstjórn. Nú skila 45% honum 6 fulltrúum. Samfylkingin bætir líka við sig miklu fylgi og fer úr 8,2% í 19,3%.
Viðreisn heldur sínum manni og Miðflokkurinn fær inn fulltrúa eftir að hafa ekki náð kjöri fyrir fjórum árum. Framsókn tapar einu sæti.