Gabríel Douane Boama var sakfelldur fyrir þrjú brot gegn valdstjórninni, tvær líkamsárásir, hótun, rán og fíkniefnabrot. Hann hlaut tólf mánaða fangelsisdóm og var dæmdur til að greiða brotaþolum samtals 1,8 milljónir í miskabætur.
Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur kvað dóminn upp 8. maí en hann birtist á vef dómstólanna í dag.
Þrjár ákærur gegn Gabríel voru sameinaðar við aðalmeðferð yfir honum. Hann játaði að hafa barið mann í verslun Hagkaups í Skeifunni og að hafa ráðist á þrjá fangaverði á Litla-Hrauni auk ýmissa fíkniefnabrota.
Gabríel neitaði því að hafa ógnað konu með hnífi og haft síma af manni með ógnunum. Hann sagðist saklaus af ákæru um líkamsárás á fanga í fangaklefa á Litla-Hrauni.
Dómara þótti þó sannað að hann hefði gerst sekur um öll þau brot. Dómari taldi Gabríel til tekna að hann játaði flest brotanna en sagði ekki hægt að líta fram hjá því að brot hans væru ítrekuð og sum hver mjög alvarleg. Því var refsing hans ekki bundin skilorði.