Fasteignasalanum og vaxtaræktarkappanum Árna Birni Kristjánssyni brá heldur betur í brún þegar hann þurfti að ganga örna sinna á Geysi. Klósettpappír og kúkur úti um allt en verðlagið upp úr öllu valdi.„Þurfti að borga fyrir bílastæði, rándýr kaffibolli sem var ódrekkandi og öll klósettin svona. Komið til Íslands, það er viðbjóðslega dýrt, algjörlega overcrowded á öllum helstu túristastöðum en samt alveg æðislegt,“ segir Árni í kaldhæðinni færslu á Instagram.
Árna Birni blöskraði óþrifnaðurinn á Geysi - „Poop you very much and please come again“