Árekstur varð á Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi fyrir skemmstu.
Dælubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að tveir séu með minniháttar áverka.
Annað farartækið er strætisvagn að sögn varðstjóra en enginn farþegi var um borð.