Tveggja bíla árekstur varð á Breiðholtsbraut síðdegis í dag.
Þetta segir Pálmi Hlöðversson, varðstjóri í aðgerðarstjórn hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Einn var fluttur af vettvangi til skoðunar á Landspítalanum en ekki er talið að meiðsl hans séu alvarleg.
Mynduðust töluverðar umferðartafir á vettvangi í kjölfar slyssins enda er Breiðholtsbraut nokkuð fjölfarin á þessum tíma dags.