Á­reitt í sturtuklefa Sund­hallarinnar í tvígang: „Mig langaði ekkert í af­sökunar­beiðni frá honum“ - Vísir

Á­reitt í sturtuklefa Sund­hallarinnar í tvígang: „Mig langaði ekkert í af­sökunar­beiðni frá honum“ - Vísir

Hún gagnrýnir viðbrögð Sundhallarinnar í báðum atvikum og kallar eftir því að verkferlum verði breytt til að tryggja öryggi kvenna í sundi. Forstöðumaður sundlaugarinnar harmar atvikin sem hann segir hryllileg. Að hans sögn verður brugðist við þessu og seinna málið tilkynnt til lögreglu eftir helgi.

Auður, sem er átján ára í dag, segir í samtali við fréttastofu að fyrra atvikið hafi markað djúpt spor í sálarlífi hennar. Það var í janúar 2024 sem leið hennar lá í Sundhöll Reykjavíkur.

„Ég fer í sturtu og þá er maður kominn inn í klefann þegar ég er nýkomin í sturtuna. Hann segir fyrst bara „ó sorry“ og heldur smá fyrir augunum eins og hann hafi bara labbað óvart inn. Mér fannst þetta mjög óþægilegt. Hann felur sig í rauninni út í horni allan tímann. Þegar ég kíki svona til hans þá er hann líka að kíkja,“ segir Auður.

„Stóð fyrir framan mig og bara starði á mig“

Hún hafi ítrekað beðið hann um að fara en maðurinn varð ekki við því og hélt áfram að ógna henni.

„Hann byrjar bara að koma nær og nær og ég sé hann allan tímann í hliðarsjón. Þar byrjar hann að leika sér með kynfæri sín og þarna er ég stanslaust að biðja hann um að fara. Hann segir alltaf „sorrý, sorrý“ en fer aldrei. Svo ákveð ég bara að loka augunum í svona eina sekúndu og þá er hann kominn fyrir framan mig,“ segir Auður.

„Hann brosti. Hann stóð fyrir framan mig og bara starði á mig. Hann var alveg upp við mig,“ segir Auður.

Allt í allt var maðurinn inni í klefanum í fimm mínútur og á tímapunkti var hann kominn fyrir framan Auði og verulega nálægt henni. Maðurinn yfirgaf loks klefann eftir ítrekuð hróp og köll.

Auður var aðeins sextán ára þegar að fullorðinn maður gekk inn á hana í sturtuklefanum.aðsend

Auður lét þá starfsmenn sundlaugarinnar vita sem náðu í manninn sem var þá í inniklefanum ásamt barninu sínu. 

„Þá byrja ég strax að brotna niður og þegar maður grætur svona þá myndi ég halda að starfsmenn myndu fatta alvarleika málsins. Það koma fyrst tveir starfsmenn og þær sýna voða skrítin viðbrögð.“

Þáverandi forstöðumaður sundlaugarinna sagði þá manninum að biðja Auði afsökunar sem hágrét á meðan.

„Þau ákváðu að setja hann fyrir framan mig sem er voða skrítið. Ég stend þarna náttúrulega bara náföl og hágrátandi. Ég vildi ekkert horfa á þennan mann. Mig langaði ekkert í afsökunarbeiðni frá honum, mig langaði bara að það væri eitthvað gert. Svo spyrja þau mig hvort ég vilji kæra hann. Ég segi við þau að ég sé sextán ára þarna og þegar eitthvað gerist við barn þá náttúrulega bara að hringja í strax í lögregluna,“ segir hún.

Sundlaugin hringdi ekki í lögregluna og gekk maðurinn út ásamt barninu. Móðir Auðar hringdi síðar um kvöldið í lögregluna og var maðurinn dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í janúar á þessu ári.

Sýnir enga virðingu

Á mánudaginn gerist það aftur að gengið er inn á Auði í sturtu. Nú í inniklefa Sundhallarinnar.

„Það labbar í rauninni maður inn og stendur þarna bara í góðar 30 sekúndur,“ segir hún.

„Ég stóð þar bara nakin og fékk bara aftur svona viðbrögð þar sem ég fraus algjörlega. Þegar maður er búinn að lenda í einhverju svona þá gerist það oft, ég bara frýs og fæ smá svona kvíðakast.“

Hún segir manninn ekki hafa sýnt viðbrögð líkt og hann hafi gengið óvart inn í rangan klefa. Móðir Auðar hafi í kjölfarið hringt í Sundhöllina.

„Þau brugðust alls ekki vel við, þau sögðu við mömmu mína að þau könnuðust ekkert við mál mitt og að þau hefðu ekkert til þess að gera fyrir hana,“ segir Auður.

„Svo hringdi hún í yfirmann í Sundhöllinni en hann segist ekkert kannast við málið og að það þurfi ekki neinn starfsmaður að vera í útiklefanum. Hann sýnir í rauninni enga virðingu fyrir neinu sem ég hef lent í.“

Hún kallar eftir viðveru starfsmanna í klefum Sundhallarinnar. Of auðvelt sé að komast upp með kynferðislega áreitni, sérstaklega í útiklefanum.

„Ég vil bara sjá að starfsmenn séu inni í klefanum. Sérstaklega í útiklefanum. Það er of auðvelt að gera þetta. Ég vil bara að engin önnur þurfi að lenda í þessu sem ég þurfti að lenda í,“ segir Auður en hún tjáði sig um málið á TikTok og hefur myndskeiðið vakið gífurlega athygli. Hún tekur fram að hún hafi birt myndskeiðið í þeirri von að eitthvað breytist og með það fyrir stafni að koma í veg fyrir frekari atvik.

@audur29 Langaði að deila minni sögu, ég vona svo innilega að eitthvað fari að breytast og að það verði tekið betur á þessu❤️ #ísland #fyp ♬ original sound - Audur

Leiti til lögreglu eftir helgi

Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhallar Reykjavíkur, harmar atvikin í samtali við fréttastofu. Verkferlar verði endurskoðaðir.

„Það er náttúrulega alveg ömurlegt að þarna séu einstaklingar á ferð sem að gera svona lagað. Okkur finnst þetta náttúrulega bara hræðilegt og við finnum svo mikið til með henni. Við þurfum líka að skoða hvernig við getum brugðist betur við til að tryggja að þetta gerist ekki. þetta er í vinnslu hjá mér og fólkinu í kringum mig,“ segir Snorri.

Er búið að tilkynna þetta mál til lögreglu sem kom núna upp?

„Nei, það verður tilkynnt núna eftir helgina. Við vorum að safna saman öllum upplýsingum sem við getum safnað saman til þess að tilkynna þetta áfram. Þannig að við komum málinu í réttan farveg strax í byrjun,“ segir Snorri.

„Við þurfum að skoða hvaða viðbrögð séu rétt og hverngi við getum nálgast þetta til að tryggja öryggi. Hjá okkur er það almennt þannig að öryggi er efest á blaði. Þetta er mikill skellur og við þurfum að gera betur.“

Hann segir að tekið hafi verið á fyrra atvikinu í tíð fyrri forstöðumanns. Þá hafi verið farið yfir viðbrögðin.

„Ég mun vissulega skerpa líka betur á því hvort ða við eigum einhverjar betri leiðir til að takast á við það þegar svona atvik koma upp. Þegar það er verið að brjóta á fólki þá eigum við að hringja í lögreglu og við reynum að gera það.“

#sundhallarinnar #afsökunarbeiðni #sturtuklefa #tvígang #langaði


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262871018d/a-reitt-i-sturtuklefa-sund-hallarinnar-i-tvigang-mig-langadi-ekkert-i-af-sokunar-beidni-fra-honum-

📰 Aðrar fréttir

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið - DV
📅 27.04.2026 07:35:03 👁️ 1

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið - DV

#fréttakonu#myndbandið#mínútna#skammar#donald
UK healthy life expectancy falls by two years in past decade
📅 27.04.2026 07:34:48 👁️ 0

UK healthy life expectancy falls by two years in past decade

#expectancy#healthy#decade#falls#years
Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu
📅 27.04.2026 07:33:29 👁️ 0

Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu

#reykjaneshrygg#bárðarbungu#skelfur#jörð
„Við búum í brjáluðum heimi“ - Vísir
📅 27.04.2026 07:30:21 👁️ 0

„Við búum í brjáluðum heimi“ - Vísir

#brjáluðum#heimi#vísir#búum
„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
📅 27.04.2026 07:20:24 👁️ 0

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“

#breytingar#hagkerfinu#róttækar#viljum#betur
Allhvöss sunnan­átt með rigningu - Vísir
📅 27.04.2026 07:16:46 👁️ 0

Allhvöss sunnan­átt með rigningu - Vísir

#sunnanátt#allhvöss#rigningu#vísir
Up to €21,400 grants now available to renovate homes in the Canary Islands
📅 27.04.2026 07:14:00 👁️ 0

Up to €21,400 grants now available to renovate homes in the Canary Islands

#available#renovate#islands#grants#canary
Hælisleitandi sakfelldur fyrir nauðgun á 14 ára stúlku – Sleppur við fangelsi en þarf að mæta í fræðslu um mörk og samþykki
Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi - DV
📅 27.04.2026 07:12:18 👁️ 0

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi - DV

#stórfellda#líkamsárás#rannsakar#lögregla#tveir
Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar
📅 27.04.2026 07:04:49 👁️ 0

Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar

#líkamsárásar#alvarlegrar#handteknir#tveir#vegna
Blautt og hvasst
📅 27.04.2026 06:56:51 👁️ 0

Blautt og hvasst

#blautt#hvasst
Hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt
📅 27.04.2026 06:56:51 👁️ 0

Hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt

#hvassviðri#stormur#kvöld#nótt
Caribbean Real Estate Market in 2026: Trends, Opportunities, and Strategies for Investors
📅 27.04.2026 06:54:00 👁️ 2

Caribbean Real Estate Market in 2026: Trends, Opportunities, and Strategies for Investors

#opportunities#strategies#caribbean#investors#estate
Man arrested over attacks on Jewish community in London
📅 27.04.2026 06:53:41 👁️ 0

Man arrested over attacks on Jewish community in London

#community#arrested#attacks#jewish#london
Varð ekki hræddur þegar hann heyrði skothvellina
📅 27.04.2026 06:48:50 👁️ 0

Varð ekki hræddur þegar hann heyrði skothvellina

#skothvellina#hræddur#heyrði#þegar#varð
Tveir hand­teknir í tengslum við stór­fellda líkams­á­rás - Vísir
📅 27.04.2026 06:26:59 👁️ 0

Tveir hand­teknir í tengslum við stór­fellda líkams­á­rás - Vísir

#handteknir#stórfellda#líkamsárás#tengslum#tveir
Drone stops all flights taking off or landing at Lanzarote Airport
📅 27.04.2026 06:11:00 👁️ 0

Drone stops all flights taking off or landing at Lanzarote Airport

#lanzarote#flights#landing#airport#taking
MONDAY WEATHER: Cloudy skies and light showers continue in the Canary Islands
📅 27.04.2026 05:53:00 👁️ 1

MONDAY WEATHER: Cloudy skies and light showers continue in the Canary Islands

#continue#weather#showers#islands#monday
Esther Ghey's dismay over PM meeting social media bosses first
📅 27.04.2026 05:24:03 👁️ 2

Esther Ghey's dismay over PM meeting social media bosses first

#meeting#esther#dismay#social#bosses
10 særðust í árásum í Odesu
📅 27.04.2026 05:12:17 👁️ 3

10 særðust í árásum í Odesu

#særðust#árásum#odesu
Robert Brovdi, Ukraine's drone commander with Russian oil in his sights
📅 27.04.2026 05:03:39 👁️ 3

Robert Brovdi, Ukraine's drone commander with Russian oil in his sights

#commander#ukraine#russian#robert#brovdi
Healthy life expectancy gap between rich and poor has widened
📅 27.04.2026 04:55:50 👁️ 2

Healthy life expectancy gap between rich and poor has widened

#expectancy#healthy#between#widened#life
'I don't want the children to see us worried': UK families feel financial hit of Iran war
📅 27.04.2026 04:55:34 👁️ 2

'I don't want the children to see us worried': UK families feel financial hit of Iran war

#financial#children#families#worried#want
Trump says he 'wasn't worried' during Washington press dinner shooting
📅 27.04.2026 04:24:19 👁️ 3

Trump says he 'wasn't worried' during Washington press dinner shooting

#washington#shooting#worried#during#dinner
Mikil mótmæli í Vilnius gegn frumvarpi um breytingar á lögum um ríkisútvarpið LRT
📅 27.04.2026 03:47:35 👁️ 1

Mikil mótmæli í Vilnius gegn frumvarpi um breytingar á lögum um ríkisútvarpið LRT

#ríkisútvarpið#breytingar#frumvarpi#mótmæli#vilnius
King's visit to 'revitalise' relationship with US
📅 27.04.2026 02:53:25 👁️ 3

King's visit to 'revitalise' relationship with US

#relationship#revitalise#visit#king#with
Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum
📅 27.04.2026 02:15:07 👁️ 1

Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum

#strandgæslan#flóttamönnum#bjargaði#franska
Oil rises as US-Iran peace talks stall
📅 27.04.2026 01:16:50 👁️ 2

Oil rises as US-Iran peace talks stall

#rises#peace#talks#stall#iran
42 drepnir í átökum um vatnsbrunn
📅 27.04.2026 01:10:07 👁️ 2

42 drepnir í átökum um vatnsbrunn

#vatnsbrunn#drepnir#átökum
Araghchi fundar með Pútín í dag
📅 27.04.2026 00:19:52 👁️ 1

Araghchi fundar með Pútín í dag

#araghchi#fundar#pútín
Sendi fjöl­skyldunni lista af skot­mörkum í for­gangs­röð - Vísir
📅 26.04.2026 23:41:35 👁️ 3

Sendi fjöl­skyldunni lista af skot­mörkum í for­gangs­röð - Vísir

#fjölskyldunni#forgangsröð#skotmörkum#sendi#lista
UK's biggest environmental pollution claim reaches High Court
📅 26.04.2026 23:01:47 👁️ 3

UK's biggest environmental pollution claim reaches High Court

#environmental#pollution#biggest#reaches#claim
Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu - Vísir
📅 26.04.2026 22:40:26 👁️ 2

Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu - Vísir

#oddvitarimmu#framíkalli#svarað#vísir#poti
Jarðskjálfti á Hokkaido-eyju
📅 26.04.2026 22:35:37 👁️ 1

Jarðskjálfti á Hokkaido-eyju

#jarðskjálfti#hokkaido#eyju
Israeli strikes kill 14 in Lebanon amid ongoing ceasefire
📅 26.04.2026 22:02:45 👁️ 3

Israeli strikes kill 14 in Lebanon amid ongoing ceasefire

#ceasefire#israeli#strikes#lebanon#ongoing
Furðar sig á þögn yfir „einu helsta á­hyggju­efni Ís­lands“ - Vísir
📅 26.04.2026 21:55:12 👁️ 1

Furðar sig á þögn yfir „einu helsta á­hyggju­efni Ís­lands“ - Vísir

#áhyggjuefni#íslands#furðar#helsta#vísir
Maður fannst látinn við Háafoss
📅 26.04.2026 21:40:00 👁️ 0

Maður fannst látinn við Háafoss

#háafoss#fannst#látinn#maður
Death toll in Colombia highway bus bomb attack rises to 20
📅 26.04.2026 21:33:00 👁️ 0

Death toll in Colombia highway bus bomb attack rises to 20

#colombia#highway#attack#death#rises
„Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“
📅 26.04.2026 21:23:28 👁️ 2

„Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“

#ríkisstyrkt#chernobyl#risastór#lygi
Krónu kastað fyrir aurinn í fjár­mögnun skóla - Vísir
📅 26.04.2026 21:18:37 👁️ 3

Krónu kastað fyrir aurinn í fjár­mögnun skóla - Vísir

#fjármögnun#kastað#aurinn#krónu#fyrir
Svartþrastamóðir sinnir ungviðinu í beinni
📅 26.04.2026 21:01:58 👁️ 1

Svartþrastamóðir sinnir ungviðinu í beinni

#svartþrastamóðir#ungviðinu#sinnir#beinni
Svartþrastarmóðir sinnir ungviðinu í beinni
📅 26.04.2026 21:01:58 👁️ 1

Svartþrastarmóðir sinnir ungviðinu í beinni

#svartþrastarmóðir#ungviðinu#sinnir#beinni
Mali Defence Minister Sadio Camara killed as country hit by rebel attacks
📅 26.04.2026 20:56:26 👁️ 1

Mali Defence Minister Sadio Camara killed as country hit by rebel attacks

#minister#defence#country#attacks#camara
Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni
📅 26.04.2026 20:39:47 👁️ 1

Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni

#slökkviliðsstöðvar#laugarvatni#ánægja#nýrrar#mikil
Fannst látinn við Háafoss - DV
📅 26.04.2026 20:30:48 👁️ 2

Fannst látinn við Háafoss - DV

#háafoss#fannst#látinn
Maðurinn sem fannst við Háafoss er látinn
📅 26.04.2026 20:20:35 👁️ 2

Maðurinn sem fannst við Háafoss er látinn

#maðurinn#háafoss#fannst#látinn
Maðurinn fannst látinn í gilinu - Vísir
📅 26.04.2026 20:16:28 👁️ 1

Maðurinn fannst látinn í gilinu - Vísir

#maðurinn#fannst#látinn#gilinu#vísir
Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss - DV
📅 26.04.2026 20:02:49 👁️ 1

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss - DV

#björgunarsveitir#kallaðar#forgangi#háafoss#hæsta
Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra
📅 26.04.2026 19:57:49 👁️ 2

Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra

#nikótínpúðum#plokkurum#blöskraði#pokana#þeirra
Sást til ein­stak­lings ofan í gili við Háafoss - Vísir
📅 26.04.2026 19:28:19 👁️ 0

Sást til ein­stak­lings ofan í gili við Háafoss - Vísir

#einstaklings#háafoss#vísir#sást#ofan