Árbæjarskóli er sigurvegari Skrekks 2026 og Norðlingaskóli hlaut Skrekkstunguna

Úrslistakvöld Skrekks, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fór fram 16. nóvember, í Borgarleikhúsinu.
Árbæjarskóli sigraði Skrekk með atriðið, Bestu ár ævi þinnar, sem fjallar um öll þau ráð sem unglingar fá um hvernig best er að haga lífi sínu en að ráðin stangist oft á. Í öðru sæti var Breiðholtsskóli með atriðið, Dulan, sem fjallar um örvæntingarfulla móður sem ber út barnið sitt og sækir atriðið innblástur í íslenska vögguvísu og draugasögur. Í þriðja sæti var Langholtsskóli með atriðið, Frelsinu fögnum, sem fjallar um heim barna þar sem frelsi og fjölbreytileiki barna er fagnað en að reglur og athugasemdir fullorðinna spilla gleðinni og gleði barnæskunnar týnist.
Í ár tóku 26 skólar þátt í Skrekk og 793 unglingar þátt í undanúrslitum. Átta skólar komust áfram í úrslitin.
Atriðin í ár fjölluðu meðal annars um kvennabaráttu, jafnrétti, glímu við geðraskanir, hvernig fullorðnir eigi það til að dæma unglinga, líkamsímynd, mikilvægi hjálpsemi, erfiðar ákvarðanir, hraðtísku, sveitalíf, minningar, fjölbreytileika, mikilvægi þess að allir megi vera eins og þeir eru, sameiningu ólíkra menningarheima, nostalgíu, kvikmyndamaraþon, spilavíti, hraðtísku og ást.
Unglingarnir semja atriðin og nýta allar sviðslistir í þau auk þess sem þau sjá um búninga, sviðsmynd, förðun, hár, ljós og hljóð.
Skólarnir sem kepptu til úrslita voru Árbæjarskóli, Breiðholtsskóli, Dalskóli, Hlíðaskóli, Klébergsskóli, Langholtsskóli, Norðlingaskóli og Sæmundarskóli.
Norðlingaskóli hlaut Skrekkstunguna í ár
Bókmenntaborgin og Miðja máls og læsis veita verðlaun fyrir skapandi notkun á íslensku í Skrekk. Verðlaunin heita Skrekkstungan, nafn sem var valið af unglingum 2022. Markmið verðlaunanna er að vekja áhuga unglinga á íslensku sem efnivið sköpunar í sviðslistum.
Í ár hlaut Norðlingasóli Skrekkstunguna en í rökstuðningi dómnefndar Skrekkstungunnar segir:
„Atriðið sem hlýtur Skrekkstunguna 2026 sló að mati dómnefndar eign sinni á og sýndi jákvætt viðhorf til íslenskunnar. Flytjendur textanna fóru vel með fjölbreyttan orðaforða, rím og hrynjanda, bæði í bundnu máli og óbundnu. Í atriðinu var íslenskan notuð í ræðu, samtali og söng þar sem sköpunargleði í orðavali, háfleygar setningar og málsháttur voru sett fram á eðlilegan og óþvingaðan hátt.“
Skrekkur er ristastórt samstarfsverkefni grunnskóla og félagsmiðstöðva Reykjavíkur, Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, RÚV og Borgarleikhússins.