„Við erum að tala saman núna,“ sagði Trump við fréttamenn nú í dag en bætti við að Íranir hefðu óskað eftir viðræðunum vegna mikillar hörku í árásum Bandaríkjanna.
„Ég held að það séu góðar líkur á að eitthvað gæti gerst, og ef svo er þá er það gott, ef ekki þá förum við aftur í það sem við vorum að gera fyrir tveimur dögum.“
Eftir um tvær vikur af daglegum árásum Bandaríkjanna á Íran hættu þeir skyndilega. Háttsettur íranskur embættismaður sagði við Reuters að Íranir myndu hætta sínum árásum svo lengi sem sjálfskipað vopnahlé Trump héldi.
Hins vegar bárust tilkynningar um drónaárásir Írana í Sádí-Arabíu, Jórdaníu og Írak í dag. Esmail Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði að enn væru skilaboð að berast á milli en að fréttir af því að Íran hefði óskað eftir viðræðum væru uppspuni.
Segir engan skort á skotfærum
Ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna hugmynda Trumps um að auka umfang árása gegn Íran. Það sé meðal annars vegna þess að gengið hefur á birgðir flugskeyta í loftvarnarkerfi Bandaríkjanna, sér í lagi þeirra sem skjóta niður skotflaugar.
Trump vísaði því hins vegar á bug að Bandaríkin stæðu frammi fyrir skorti á skotfærum. Herinn væri að endurbyggja birgðir sem hefði verið gengið á vegna sendinga til Úkraínu.