Bandaríkjaher hóf árásir að nýju á Íran í kvöld eftir um mánaðarlangt hlé. Árásirnar voru gerðar á tvo eldflaugaskotpalla Írana á Larak-eyju, samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hernum.
Íranski byltingarvörðurinn svaraði með árásum á tvær herstöðvar Bandaríkjanna í Jórdaníu. Íranskur ríkisfjölmiðill segir að eldflaugaárásir Írana hafi valdið miklu tjóni.
Jórdanski herinn segir að loftvarnakerfi þeirra hafi skotið niður átta eldflaugar Írana.
Þetta eru fyrstu árásir Bandaríkjahers á Írana síðan seint í júlí. Þó að dregið hafi úr átökum um tíma hafa Bandaríkin hert enn frekar viðskiptaþvinganir gegn Íran. Diplómatar í Pakistan og Katar hafa reynt að miðla málum milli Írana og Bandaríkjamanna mánuðum saman en án árangurs.