Tilkynnt var í gær um forstjóraskipti í Apple, nokkuð sem hefur ekki gerst oft í 50 ára sögu fyrirtækisins. Sérfræðingar telja að með nýjum forstjóra verði minni áhersla lögð á stækkun fyrirtækisins, sem hefur verið mikil undir stjórn núverandi forstjóra, og meiri áhersla á vöruþróun sem hafi setið nokkuð á hakanum.
Tim Cook núverandi forstjóri, sem er 65 ára, hefur gegnt forstjórastarfinu í 15 ár. Þá tók hann við af stofnandanum Steve Jobs, sem var þá orðinn veikur af krabbameini og lést skömmu síðar. Starfslok hans komu ekki á óvart en tæknibransinn var lengi búinn að velta fyrir sér hver myndi taka við. Í gær var því svarað og niðurstaðan var ekki sérstaklega óvænt. Í haust tekur John Ternus við. Hann hefur starfað í 25 ár hjá fyrirtækinu og er nú yfir vélbúnaðarþróun fyrirtækisins. Samhliða valdaskiptunum verður næsti iPhone sími kynntur.
Cook er fyrst og fremst rekstrarmaður þó að hann hafi alltaf starfað í tæknibransanum. Áður en hann kom til Apple starfaði hann hjá fyrirtækjum á borð við IBM og Compaq. Í forstjóratíð Cook hefur fyrirtækið stækkað töluvert. Árið 2018 varð Apple fyrsta einkafyrirtækið til að verða metið á eina trilljón (1.000.000.000.000) Bandaríkjadala. Það er núna metið á 4 trilljónir Bandaríkjadala. Hagnaður fyrirtækisins fjórfaldaðist og salan jókst verulega. Á sama tíma hefur vöruúrval og framleiðsla fyrirtækisins ekki breyst sérstaklega mikið. Helsta nýjungin í stjórnartíð Cooks var Apple Vision Pro, heyrnartól tengt sýndarveruleika. Þau náðu engri sérstakri hylli og framleiðslunni var á endanum hætt. Dipanjan Chatterjee greinandi hjá Forrester segir að Apple sé núna of fjárhagslega háð sölu á iPhone á meðan fyrirtækið leiti að nýjum vaxtarbroddi.
Vonast er til að Ternus geti komið með þann brodd. Í starfi sínu hefur hann komið að nánast öllum stórum vörum sem Apple hefur framleitt, til að mynda allar gerðir iPad spjaldtölvunnar, flestar gerðir af iPhone símanum og upphafi vara á borð við AirPods heyrnartól og Apple snjallúrið. Chatterjee segir þessa skipun sýna að Apple stefni að því að bjóða upp á nýjar vörur og að stjórnendur þurfi að standast þá freistingu að leita sífellt eftir stækkun fyrirtækisins. Sérfræðingar búast við að þetta verði til dæmis til þess að Apple bjóði vörur á borð við samanbrjótanlegan síma og snjallgleraugu.
Apple hefur líka verið legið á hálsi fyrir að hafa brugðist hægt við aukinni kröfu um gervigreind. Það hafi endað með því að tækni frá Google og OpenAI var samhæfð inni í framleiðslu fyrirtækisins. Nú geti verið tækifæri til að innleiða gervigreindina meira í tæki fyrirtækisins.
Ternus tekur formlega við forstjórastarfinu hjá Apple 1. september.