Stjórn gervigreindarstórfyrirtækisins Anthropic hefur tilkynnt að fyrirtækið hafi lagt fram trúnaðarumsókn um leyfi til frumútboðs hlutabréfa, og slær þannig helsta keppinaut sínum, OpenAI, við í kapphlaupinu sem nú ríkir í Kísildalnum um að koma gervigreindarfyrirtækjum á hlutabréfamarkað.
Fyrirtækið, sem metið er á hartnær þúsund milljarða bandaríkjadala, hefur rétt eins og önnur gervigreindarfyrirtæki leitast við að afla þeirra gríðarlegu fjárhæða sem þarf til að knýja áfram hraðan vöxt greinarinnar með ýmsum leiðum, og skráning á almennan hlutabréfamarkað er nýjasta útspilið í þeirri fjáröflunarvegferð.
Heldur á hlutabréfamarkað eftir yfirferð eftirlitsins
Trúnaðarumsókn á borð við þá sem Anthropic hefur lagt fram gerir fyrirtækinu kleift að leggja fram nauðsynleg skjöl vegna frumútboðsins til bandaríska verðbréfaeftirlitsins (SEC) til yfirferðar án þess að opinbera fjárhags- og viðskiptaupplýsingar sínar fyrr en mun seinna í ferlinu.
„Þetta gefur okkur möguleika á að fara á markað eftir að verðbréfaeftirlitið hefur lokið yfirferð sinni,“ sagði í yfirlýsingu frá fyrirtækinu. „Fyrirhugað frumútboð mun ráðast af markaðsaðstæðum og öðrum þáttum.“
Tekið fram úr ChatGPT í verðmati
Gervigreindarfyrirtækið tilkynnti á fimmtudag að það hefði safnað 65 milljörðum Bandaríkjadala, um 8 billjónir króna, í nýrri fjármögnunarlotu, en áður hafði það verið metið á 900 milljarða dala, eða um 111 billjónir íslenskra króna.
Með nýjasta verðmati, sem hljóðar upp á 965 milljarða Bandaríkjadala, eða 119 billjónir króna hefur fyrirtækið loks tekið fram úr helsta keppinauti sínum, OpenAI, sem er fyrirtækið að baki mállíkaninu ChatGPT.
Fjármögnunarlotan þykir meitla stöðu Anthropic sem eins stærsta fyrirtækis heims á sviði gervigreindar í stein, en fyrirtækið er helst þekkt fyrir að hafa skapað gervigreindarlíkanið Claude.
Fyrirtækið mun að mati greiningaraðila hafa hækkað í verði eftir að hafa lagt áherslu á að markaðssetja gervigreindarlausnir til fyrirtækja fremur en almennra notenda, sem var sú leið sem OpenAI lagði einkum áherslu á.
