Án þéttingarstefnunnar væru „7.000 aukabílar í Ártúnsbrekkunni“
Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, sagði ungt fólk ekki hafa efni á að búa í Reykjavík og kallaði eftir meiri hringrás á húsnæðismarkaði í kappræðum Heimildarinnar. Tekist var á um þéttingarstefnuna, sem Pétur Marteinsson sagði að hefði komið í veg fyrir að sjö þúsund fleiri bílar væru í Ártúnsbrekku á hverjum degi.
Skipulags og húsnæðismál urðu að einni heitustu kartöflu kappræðna oddvita í Reykjavík þegar rætt var um húsnæðisverð, þéttingu byggðar, lóðaskort og hvort borgin ætti sjálf að koma að húsnæðisuppbyggingu.
Segir markaðinn ekki leysa vandann
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, sagði að Reykjavík ætti að auka framboð af húsnæði hvort sem fólk vildi leigja eða kaupa. Hún sagði að læra þyrfti af því að verkamannabústaðakerfið hefði verið lagt niður og að Reykjavíkurborg ætti að taka stærri skref í að útvega íbúum húsnæði.
„Markaðurinn hefur ekki náð að leysa þennan vanda, mun aldrei ná að útvega okkur öllum heimili af því það er ekki markmið hans,“ sagði Sanna. Hún sagði húsnæði grundvallarmál í lífi fólks og gagnrýndi að fólk þyrfti að greiða stóran hluta ráðstöfunartekna í leigu eða flytja sífellt milli hverfa. …