Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, í samtali við fréttastofu en Rúv greindi fyrst frá.
Í dagbók lögreglu í morgun kom fram að lögreglan sinnti tveimur útköllum þar sem annars vegar varð „meiri háttar“ líkamsárás í hverfi 105 og hins vegar „stórfelld“ líkamsárás í hverfi 108.
Veistu meira um málið? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Hin líkamsárásin er á borði almennu deildarinnar að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Árásin hafi verið flokkuð meiri háttar þar sem að kylfa var notuð í árásinna. Talið er að árásin hafi tengst rukkun.
Fórnarlamb hennar meiddist ekki alvarlega og var ekki flutt á sjúkrahús. Málið er í rannsókn og er enginn í haldi vegna hennar.
Veistu meira um málið? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.