Er þetta meðal þess sem fram kom í samtali blaðamanns og Jóhanns Karls Þórissonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en hann segist ekki vita til þess að nein vandræði hafi komið upp í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið sem fór fram í dag, laugardaginn 22. ágúst.
Dagskráin gangi vel og allt skipulagt í þaula, enda hafi Menningarnótt verið haldin árlega síðan 1996 og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu því skipuð reynsluboltum sem hafi skipulagt daginn svo árum skipti.
„Þannig að það er ekkert að fara að klikka þar, vonandi verður fólk bara í góðu skapi,“ segir hann og nefnir að hann hafi ekki heyrt annað en að allir hafi virt götulokanir í miðbænum.
„Ég hef ekki heyrt annað. Allir glaðir,“ segir hann og bætir við að því miður sé ekkert sem lögregluembættið geti gert í því að ekki hafi ræst úr veðrinu en hann voni að fólk láti rigningu ekki fara um of í taugarnar á sér.