Norskir fjölmiðlar eru farnir að undirbúa sig fyrir andlát Haraldar konungs. Þó virðast margir Norðmenn ekki alveg tilbúnir til að vita af því en hörð viðbrögð hafa verið við Snapchat-myndbandi fréttakonu þar sem opinberað var hvernig undirbúningi einnar sjónvarpsstöðvar fyrir fráfall konungs er háttað.Konungurinn hefur verið heilsuveill undanfarin ár sem ætti svo sem ekki að koma á óvart í ljósi þess að hann er 89 ára gamall.
Allt brjálað í Noregi eftir að fjölmiðlakona opinberaði undirbúninginn fyrir andlát konungs