Allir og amma þeirra á Ítalíu - Vísir

Allir og amma þeirra á Ítalíu - Vísir

Allir og amma þeirra á Ítalíu - Vísir

Barítónsöngvarinn Bergþór Pálsson er ekki meðal þeirra Íslendinga sem hefur verið á ferð um Ítalíu en hefur greinilega orðið var við Ítalíuflakk samlanda sinn því í vikunni tók hann saman nokkur atriði sem bera að forðast þegar maður heimsækir Ítalíu. 

Þar er ýmislegt sem mætti flokka sem almenna skynsemi en einnig annað sem er gott að vita. Þar má nefna að ganga inn í búð án þess að heilsa, bera Ítalíu saman við heimalandið, setja tómatsósu á pasta og panta sér cappuccino eftir mat. Vonandi hafa samlandar Bergþórs ekki brennt sig á þessu.

Fjölmennur vinahópur í hjólaferð

En þá að þeim sem hafa verið á flakki um landið. Meðal þeirra sem hafa lagt leið sína á Appenínaskaga undanfarnar tvær vikur er stór vinahópur sem hjólaði um norðvesturströnd Ítalíu í svælandi hitanum.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og tannlæknirinn Hafdís Björk Jónsdóttir voru þar með í för sem og poppgoðsögnin Ragga Gísla og Birkir Kristinsson, fyrrverandi landsliðsmarkmaður auk poppstjörnunnar Birgittu Haukdal og eiginmanns hennar, lögmannsins Benedikts Einarssonar.

Jón og Hafdís í hjólagöllunum.

Mikil leikara- og leikhússlagsíða var í hjólahópnum, þarna voru til að mynda leikarahjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarson auk Unnar Aspar Stefánsdóttur og Björns Thors.

Fleiri leikarar úr Þjóðleikhúsinu voru í hópnum, Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, og eiginkona hans, ljósmóðirin Ingibjörg Ýr Óskarsdóttir; Skagahjónin Halli Melló og Matthildur Magnúsdóttir lögfræðingur; leikarinn Hilmar Guðjónsson og Kolbrún Vaka Helgadóttir kynningarfulltrúi, skemmtikrafturinn Sveppi Krull og Íris Ösp Bergþórsdóttir mannauðsstjóri og svo Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, stjórnarformaður Hörpu.

Á samfélagsmiðlum mátti sjá söngkonunni Selmu Björnsdóttur bregða fyrir sem óvæntum gesti í kvöldverði með hjólahópnum. Annan dag var skemmtikrafturinn Ari Eldjárn mættur til móts við hópinn. Nánar að honum síðar.

Halli og Matthildur gul og glöð.

Íslenska bikiníið dregið fram

Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar er enn stödd á Ítalíu og hefur verið þar síðustu daga meðan mesti hitinn hefur riðið yfir. Hún hefur þó tekið hitann með í reikninginn og fundið sér stöðuvatn til að baða sig í.

Bríet birti myndaveislu á Instagram af sér klædd bikiníi frá TakkTakk í íslensku fánalitunum um borð í bát á Ítalíu og að baða sig í íslenskum læk einhverjum dögum fyrr. 

Fjölskylduferð um fallegu Ischiu

Kristín Pétursdóttir, áhrifavaldur og leikkona, fór með drengjunum sínum tveimur, foreldrum sínum, Berglindi Guðmundsdóttur landslagsarkitekt og Pétri Gauti myndlistarmanni, og litla bróður sínum, leikaranum Starkaði Péturssyni, til eyjunnar Ischiu í Tyrrenahafi undan ströndum Ítalíu.

Fjölskyldan gekk þar um fagrar götur eyjunnar, sólaði sig á ströndinni, borðaði sjávarrétti og drakk rauðvín.

Pétur Gautur, Berglind, Kristín og Tindur litli skemmtu sér á Ischiu.

„Töff dagur til að eiga afmæli og að gifta sig á Ítalíu“

Uppistandarinn Ari Eldjárn fagnaði sömuleiðis fertugsafmæli sinnar heittelskuðu Tinnu Bráar Baldvinsdóttur, eiganda verslunarinnar Hrím, í Lígúríu-héraði og kíkti parið í smábæinn Dolceaqua til að dást að brúarsmíði Ítala.

Ekki nóg með það heldur fór parið einnig í brúðkaup hjá vinum sínum, Unu og Baldvini.

„Ari er búinn að dekra við mig stanslaust í tveimur löndum undanfarna 12 daga. Ég er svo þakklát fyrir ferðina og síðustu tveir dagar hafa verið sérstaklega fallegir og skemmtilegir,“ skrifaði Tinna í færslu á Fésbókinni.

Ari með brúðhjónunum og kærustu sinni, Tinnu Brá.

Umfangsmikið brúðkaup við Gardavatn

Rúmum mánuði áður en Ari og Tinna fóru í brúðkaup Unu og Baldvins fór fram annað brúðkaup Íslendinga á Ítalíu. Kynlífstækjasalarnir Gerður Arinbjarnardóttir og Jakob Fannar Hansen, eigendur Blush, giftu sig við hátíðlega athöfn fyrir framan 85 gesti við Gardavatn á Norður-Ítalíu.

Öllu var tjaldað til við brúðkaupið, Eva Ruza sá um að gifta hjónin og hélt síðan utan um veislustjórn ásamt Hjálmari Erni Jóhannssyni, rapparinn Emmsjé Gauti tróð upp og plötusnúðurinn Sunna Ben þeytti skífum fram á nótt.

Eva Ruza gifti hjónin.

Nýbakað par á Ítalíu

Þá herma heimildir fréttastofu að nýbakaða parið Bjarni Guðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu, hefðu verið saman á Ítalíu.

Bjarni og Ásdís unnu áður saman hjá Vís þar til hann hætti hjá fyrirtækinu og skellti sér út í pólitíkina. Leiðir skildu nýverið hjá Bjarna og Önnu Maríu Gísladóttur eftir þrjátíu ára samband og hann hefur síðan fundið ástina í örmum Ingibjargar.

Bjarni og Ingibjörg eru sjóheitt nýtt par.

Endurupplifir æskuminningar

Fleiri Íslendingar gerðu sér ferð til Gardavatns. Sigurður Helgi Pálmason, myntsafnari og þingmaður Flokks fólksins, er staddur þar um þessar mundir með sinni heittelskuðu Ragnheiði Möller, jógakennara og ungbarnasundskennara. 

Gardavatnið er fagurt.

„Það hefur verið draumur hjá mér í mörg ár að ferðast um Ítalíu, og þá sérstaklega svæðið í kringum Gardavatnið. Nú létum við Ragnheiður loksins verða af því og það er óhætt að segja að hvert sem litið er sé eins og maður sé staddur inni í bíómynd,“ skrifaði Sigurður í Fésbókarfærslu í vikunni.

Eftir að hafa ferðast um bæina við Gardavatnið liggur leið þeirra svo til Feneyja.

„Kannski á þessi löngun mín rætur að rekja til æskuáranna. Ég á góðar minningar frá ferð sem ég fór sem barn með mömmu og Friðriki, þar sem við keyrðum um Ítalíu. Það er eitthvað sérstakt við að geta sótt í þessar minningar og upplifað nú með Ragnheiði.“

Ítalski fánanum skipt út fyrir Jörund hundadagakonung

Ólafur Þ. Harðarson er mikill heimshornaflakkari, fór í langa ferð um Kína síðasta haust og skellti sér til Ítalíu áður en hitabylgjan skall. Þau hjónin voru þar í fimmtán daga og dvöldu bæði í Róm og á Sikiley.

Ferðalag þeirra hjóna komst meira að segja í fréttirnar því áður en þau fóru út 10. júní hafði Ólafur dregið ítalska fánann að húni. Sá ítalski blakti því í Barmahlíðinni þegar þjóðhátíðardagurinn 17. júní rann upp. 

Þetta gramdist nágranna Ólafs, Þorgils Torfa Jónssyni, sem var svo hneykslaður að hann greindi frá hneykslinu á samfélagsmiðlum. Ólafur, sem er mikill fánasafnari og á yfir hundrað fána, skýrði mál sitt í samtali við blaðamann Vísis og sagði að ítalski fáninn hefði átt að vaka yfir garðinum meðan þau hjónin væru á ferðalagi. 

Þegar þau komu svo aftur til landsins í lok júní var þeim ítalska skipt aftur út.

Þorskafáni Jörundar hefur blakt í Barmahlíðinni síðustu daga.

„Kom heim í kvöld eftir 15 daga dvöl á Ítalíu - í Róm og á Sikiley. Gott að komst aftur í skikkanlegan hita. Gullregnið okkar hefur heldur betur tekið við sér undir ítalska fánanum, sem blakti í garðinum meðan við vorum í burtu. Þegar við fórum var það alveg óútsprungið. Gullregninu hefur líkað ítalski fáninn vel, enda er það útlend jurt,“ skrifaði Ólafur í færslu á Fésbók eftir heimkomuna.

„Fyrsta verk mitt var að flagga íslenska fánanum. Í tilefni umræðunnar undanfarna daga er augljóslega við hæfi að flagga þeim elsta - þorskafána Jörundar hundadagakóngs ... ;)“

Leikkonan Selma Björnsdóttir var einnig á ferðalagi með sínum nánustu og ferðaðist um Toskana-hérað með kærasta sínum, Kolbeini Tuma Daðasyni ritstjóra, og börnum hans.

„Við lifum þetta af“

Orri Páll Jóhannsson, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, dvaldi með heittelskuðum eiginmanni sínum, Jóhannesi Elmari Jóhannessyni Lange, á Ítalíu um miðjan síðasta mánuði þar sem þeir fögnuðu afmæli Jóhannesar.

„Sykursnúðurinn með hattinn á afmæli í dag. Hann ver deginum með mér og mínum á Ítalíu í 30° hita. Við lifum þetta af, aðallega ég þó vegna þess að ég á þennan gæðing og þetta staka góðmenni að,“ skrifaði Orri í Fésbókarfærslu 16. júní.

Orri og Jóhann í þrjátíu stiga hita.

„Gangi henni vel!“

Hjónin Þorvaldur Bjarni, tónlistarmaður og tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, og Þórunn Geirsdóttir, skipulags- og sýningarstjóri Menningarfélags Akureyrar, kíktu líka til Ítalíu.

Þorvaldur birti skemmtilega mynd af sinni heittelskuðu uppi í rúmi með maska, vínglas og góða bók og skrifaði við hana: „Þórunn Geirsdóttir að reyna að verða ekki brún á ítalíu. Gangi henni vel!“

Þórunn í góðu yfirlæti.

Skólaheimsóknir á Ítalíu

Fyrir utan hin og þessi nöfn sem hafa verið talin upp hér þá fóru starfsmenn nokkurra íslenska skóla í skólaheimsóknir til Ítalíu.

Starfsfólk Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi dvaldi í Róm í byrjun júnímánaðar þar sem það kynnti sér starfsemi tveggja skóla, bæði í bænum Tivoli og í Róm.

Starfsfólk FVA í hitanum.

Sjötíu manna hópur kennarar og starfsmanna Fjölbrautaskólans í Ármúla hélt líka til Rómar í lok mái og kynnti sér starf tveggja skóla í borginni Ferentino og höfuðborginni. Sömuleiðis fór starfsfólk Fossvogsskóla í skólaheimsóknir til bæði Ítalíu og Sviss.

Stuð á Ítalíu.
#allir #amma #vísir #ítalíu #þeirra


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262904731d/allir-og-amma-theirra-a-italiu

📰 Aðrar fréttir

Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
📅 08.10.2026 👁️ 1
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja að þrír óbreyttir borgarar hafi verið drepin og að 36 hafi særst í árásum á tvo alþjóðaflugvelli sem Hútar hafa lýst ábyr...
Virðist ekki muna eftir aftökunni
📅 08.10.2026 👁️ 1
Virðist ekki muna eftir aftökunni
Lögmaður Christu Pike segir að legið hafi við því að hún yrði tekin úr öndunarvél eftir að hún var lögð inn á spítala og áður en hún komst til meðvitu...
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 2
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 2
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 2
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 3
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 3
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 3
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 4
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 4
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 4
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 4
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 4
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 4
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 4
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...