Spánverjinn Rodri mun ákveða framtíð sína hjá enska knattspyrnufélaginu Manchester City eftir HM í Norður-Ameríku í sumar.
Þetta sagði hann á blaðamannafundi.
Rodri, sem hefur verið með betri leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar síðustu ár, hefur verið orðaður við Real Madrid undanfarið.
Hann á ár eftir af samningi sínum hjá Manchester City en hann hefur verið leikmaður liðsins síðan 2019.
Rodri vann þrennuna með Manchester City árið 2023 en hann hefur fjórum sinnum orðið Englandsmeistari. Hann vann þá gullboltann árið 2024.