Áhorf á úrslitakvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var í fjölmörgum löndum talsvert minna en undanfarin ár. Þátttökuþjóðirnar hafa ekki allar skilað inn áhorfstölum en miðað við birtar tölur var mesta áhorfið í Þýskalandi. Þar horfðu 8,94 milljónir á úrslitakvöldið, sem samsvarar meira en 64% áhorfi. Það eru örlítið færri en í fyrra þegar 9,1 milljón fylgdist með en það var mesta áhorf í Þýskalandi síðan 2016.
Minnsta áhorf í Bretlandi í 16 ár
Á Ítalíu og í Bretlandi voru áhorfendur úrslitakvöldsins rétt rúmlega 5 milljónir. Þrátt fyrir svipaðar áhorfstölur segja þær sitthvora söguna. Áhorfið á Ítalíu var í takti við síðustu ár en í Bretlandi hefur það ekki verið lægra síðan 2010. Til samanburðar hafa áhorfendur í Bretlandi flestir verið 9,9 milljónir 2023. Árangur þjóðanna spilar líklega inn í áhorf. Framlag Ítalíu hafnaði í fimmta sæti en framlag Bretlands í 25. og þar með síðasta sæti keppninnar.
Í fleiri löndum var talsvert minna áhorf en undanfarin ár. Í Svíþjóð hefur það ekki verið minna síðan 2010, í Frakklandi síðan 2008 og í Noregi síðan 2007. Í Portúgal og Belgíu hefur áhorfið sömuleiðis ekki verið minna í nokkur ár.
Annars staðar jókst áhorf
Víða annars staðar jókst áhorf. Í Búlgaríu horfðu tæplega 600 þúsund manns á söngkonuna Dara sigra keppnina fyrir sína hönd með laginu Bangaranga. Það er næstmesta áhorf á keppnina þar í landi. Í Finnlandi var áhorfið það mesta síðan keppnin fór fram í Helsinki 2007 og í Ástralíu hafa ekki fleiri horft á keppnina síðan 2015, þegar Ástralir tóku fyrst þátt. Á Grikklandi var meðalfjöldi áhorfenda um 2,8 milljónir, það mesta síðan 2011.
Fimm þjóðir, Ísland, Írland, Holland, Slóvenía og Spánn, sendu ekki framlög í keppnina í mótmælaskyni við þátttöku Ísraels vegna stríðsins á Gaza. Af þeim hefur aðeins Holland birt áhorfstölur. Þar horfðu rétt tæp 800 þúsund á keppnina, sem er minnsta áhorf síðan 2008. Spánn sýndi ekki frá keppninni í sjónvarpi.
Áhorfstölur á Íslandi hafa ekki enn verið birtar en von er á samantekt á næstu dögum.