Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Banderos, skips Paul Watson-samtakanna. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri.
Áhöfnin var handtekin á fimmtudagskvöld eftir að hafa reynt að trufla för hvalveiðiskipsins Hvals 9. Landhelgisgæslan tók yfir skipið á fimmtudagskvöld og sigldi því til hafnar í Reykjavík í gær.
Skipið fer ekkert næstu daga
21 er í áhöfn Bandero og voru allir yfirheyrðir í gær ýmist um borð í varðskipinu Freyju eða á lögreglustöð.
Ásgeir segir að áhöfninni sé skylt að halda sig um borð í skipinu þar til annað er ákveðið. Samgöngustofa yfirfór Bandero í gær að beiðni lögreglunnar og segir Ásgeir stofnunina hafa afturkallað haffærni skipsins. Skipið fari því ekkert næstu daga.
Í fréttum í gær kom fram að lögregla færi fram á brottvísun og endurkomubann yfir áhöfninni. Lögregla hafi sent greinargerð þess efnis til Útlendingastofnunar.