Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseti Írans, átti að verða nýr leiðtogi Írans, samkvæmt fyrstu stríðsmarkmiðum Bandaríkjamanna og Ísraela, í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Þetta kemur fram í grein The New York Times sem upplýsir um málið.
Samkvæmt ónafngreindum heimildarmönnum lögðu Ísraelar á ráðin um þetta með Ahmadinejad. Hann var í stofufangelsi í Íran þegar átök brutust út. Gerð var árás við heimili hans, sem átti að gera honum kleift að flýja, en þess í stað særðist hann í árásinni og honum snerist hugur við árásina. Hann hefur ekki sést opinberlega eftir árásina og ekki er vitað um heilsufar hans eða hvar hann heldur til.
Ahmadinejad er sagður vera óvenjulegur kostur sem leiðtogi Írans. Hann hefur ítrekað komist upp á kant við stjórnvöld í Íran, er dyggur stuðningsmaður kjarnorkuáætlana Írana og harður andstæðingur bæði Ísraela og Bandaríkjamanna. Sem forseti Írans árin 2005-2013 vildi hann láta „þurrka Ísrael út af kortinu.“
Á fyrstu dögum stríðsins í Mið-Austurlöndum sögðu bandarískir embættismenn að búið væri að gera áætlun með Ísraelum sem miðaðist við að finna raunsæismann til að taka við stjórnartaumum í Íran. Því var haldið fram að það viðkomandi væri úr írönsku stjórninni og væri tilbúinn að vinna með Bandaríkjamönnum, samkvæmt The New York Times.
Tímaritið The Atlantic greindi frá því í mars að samkvæmt nánum samstarfsmönnum hefði Ahmadinejad sloppið úr stofufangelsinu eftir árásina við heimili hans. Einn samstarfsmanna hans sagði eftir þetta við The New York Times að Bandaríkjamenn sæju Ahmadinejad sem hugsanlegan leiðtoga Írans, sem gæti náð stjórn á stjórnmálum, samfélaginu og hernum. Sem slíkur yrði Ahmadinejad á pari við Delcy Rodrigues, sem var skipaður forseti Venesúela þegar Bandaríkjamenn hnepptu Nicolas Maduro, fyrrverandi forseta landsins, í varðhald.
Hér er hægt að lesa umfjöllun The New York Times um Ahmadinejad og áætlanir Bandaríkjamanna og Ísraela.