Málverk sem Stephen Lárus Stephen listmálari gerði af Unni Brá Konráðsdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, var afhjúpað á Alþingi í gær. Unnur Brá og fjölskylda hennar, listamaðurinn, forseti Alþingis, þingmenn og stjórnendur á skrifstofu Alþingis voru viðstaddir afhjúpunina.
Hefð er fyrir því að máluð séu portrett af fyrrverandi forsetum Alþingis og forsetum sameinaðs Alþingis og þau höfð til sýnis í þinghúsinu.
Málverkið af Unni Brá verður í efri deildarsal Alþingis fyrst um sinn.
Unnur Brá var þingmaður Sjálfstæðisflokksins 2009 til 2017 og forseti Alþingis 2017.
Fréttastofa fjallaði fyrir nokkru um málverkin sem prýða Alþingishúsið og hefðina á bak við portrettin af fyrrverandi þingforsetum. Þá umfjöllun má sjá hér fyrir neðan.