Innviðaráðherra segir gríðarlega hagsmuni í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair. Flugvirkjar sem starfa hjá Icelandair munu hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi, eða eftir rúma viku. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði við fréttastofu í morgun að mikið bæri í milli samningsaðila og útlitið ekki alltof gott um að launs fyndist í tíma. Ráðherra segir ábyrgð samningsaðila mikla, en rætt er við hann í hádegisfréttum.
Við segjum einnig var því að eldsupptök í Toppstöðinni í Elliðaárdal liggi ekki fyrir en slökkviliðsstjóri segir að umgangur virðist hafa verið um húsið sem eigi að vera mannlaust. Ekki er talið að um altjón sé að ræða og enn er stefnt að opnun miðstöðvar jarðaríþrótta í húsinu.
Nýr Tækniskóli mun ekki rísa í Hafnarfirði en bæjaryfirvöld keyptu aldrei lóðir sem þau höfðu lofað undir bygginguna. Varaformaður bæjarráðs segir vonbrigði að missa skólann úr bænum.
Svo hugum við að Emmy verðlaunahátíðinni, þar sem velski leikarinn Matthew Rhys kom sá og sigraði.
Hádegisfréttir á Bylgjunni á slaginu tólf, umsjónarmaður er Telma Tómasson.