Hún skrifaði reyndar „nudes“ sem ótal margir skildu sem nektarmyndir og um 600 þúsund manns hafa sett hjarta við færsluna. Almennt er Martha að fá nokkur þúsund hjörtu á myndirnar sínar á Instagram og má því segja að þessi færsla hafi vakið töluvert meiri athygli en nokkur önnur hjá henni.
Aðdáendur stjörnunnar voru æstir í þetta og rúmlega þrettán þúsund manns skrifuðu athugasemd undir þar sem þeir hvöttu hana eindregið til að setja út nektarmyndirnar sínar. Þar á meðal bauð tímaritið Playboy henni að heyra endilega í þeim og opinber Instagram-síða OnlyFans var ánægð með þessa hugmynd.
Það leið þó ekki á löngu þar til það kom í ljós að þetta var markaðsherferð hjá Mörthu sem virkaði sannarlega vel. Hún var að auglýsa varagloss sem ber heitið „Nudes“ og greindi frá því á Instagram fimm klukkutímum eftir að myndin birtist. Því virðist hún ekki vera í neinum hugleiðingum um að deila nektarmyndum.
Gærdagurinn var ansi fjörugur hjá Mörthu ef marka má Instagram-hringrás hennar. Hún sótti tískusýningar í New York á tískuvikunni þar og fór á góðgerðar-galakvöld í stórborginni. Þar sat hún við hliðina á rísandi stórstjörnunni Alix Earle, sem er nú með raunveruleikaseríu á Netflix. Fór vel á með stöllunum og Martha skálaði meðal annars í Espresso Martini.