Aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Ingileif Friðriksdóttir, gagnrýndi foreldra sem tóku barn sitt tímabundið úr Vesturbæjarskóla vegna hinseginfræðslu sem þau töldu fara gegn sínum lífsskoðunum.
Í færslu sem Ingileif birti um helgina vísar hún til fréttar sem Nútíminn skrifaði um málið:
„Að kynnast mismunandi fjölskylduformum og upplifunum fólks er víst of mikil „innræting” að mati sumra.“
Foreldrarnir sem um ræðir höfðu farið fram á að barn þeirra yrði undanþegið kennslu sem byggði á efni frá Samtökunum ’78. Þau vísuðu meðal annars til trúar- og sannfæringarfrelsis, réttar foreldra samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu og laga um samstarf heimilis og skóla.
Í samtali við Nútímann sagði faðir barnsins:
„Við förum aðeins fram á að tekið sé tillit til sannfæringar okkar og lífsskoðana og að barnið okkar sé ekki látið sitja undir fræðslu er stríðir gegn velferð fjölskyldunnar.“
Foreldrarnir sögðu jafnframt að barnavernd hefði verið nefnd á fundi með skólayfirvöldum og ákváðu í kjölfarið að taka barnið tímabundið úr skóla og sinna heimakennslu á meðan málið væri til skoðunar.
Segir umræðuna hættulega
Í færslu sinni segir Ingileif að gagnrýni á regnbogafánann og hinseginfræðslu geti skapað hættulega orðræðu.
„Fyrir börnin mín er orðræða þeirra sem vilja útiloka hann hættuleg. Hún elur á ótta í garð fólks í okkar samfélagi, fjölskyldna eins og okkar, sem hefur það sér eitt til sakar unnið að vera það sjálft.“
Þá gagnrýnir hún sérstaklega Miðflokkinn og segir flokkinn hafa skapað jarðveg fyrir harðari orðræðu gegn hinsegin fólki.
„Vangaveltur kjörinna fulltrúa eru nefnilega miklu meira en bara vangaveltur. Þær eru rifa á hurð sem hleypir flóðbylgju haturs í gegnum dyrnar.“
Harðar deilur við Eld Smára
Færslan leiddi einnig til harðra orðaskipta milli Ingileifar og Elds Smára Kristinssonar, sem hefur verið áberandi í umræðu um málefni samkynhneigðra.
Eldur birti mynd af appelsínugulum og regnbogalituðum armböndum sem stuðningsfólk Viðreisnar hafði borið og líkti þeim við armbönd sem nasistar notuðu.
Screenshot
„Flott band á handleggjum ykkar og barnanna ykkar í Viðreisn,“ skrifaði hann meðal annars.
Ingileif svaraði því að um fyrirliðabönd úr fótbolta væri að ræða og sagði samanburðinn bæði ranglátan og kaldhæðnislegan í ljósi sögu nasismans.
„Þetta er fyrirliðaband úr fótbolta. En þú hefur greinilega meiri áhuga á nasisma en íþróttum,“ skrifaði hún.
Hún bætti við:
„Þú ættir þá að vita að nasistar ofsóttu samkynhneigða og trans fólk. Hópa sem Viðreisn, ólíkt þínum flokki, stendur hátt og skýrt með.“
Eldur svaraði því að hann tilheyrði ekki stjórnmálaflokki og hafnaði jafnframt tengingu transfólks við ofsóknir nasista.
„Nasistar ofsóttu samkynhneigða. Svokallað transfólk kom ekki þarna nálægt og það er sögufölsun að halda slíku fram,“ skrifaði hann.
Í annarri athugasemd gagnrýndi hann einnig það sem hann kallaði „ógagnreyndar tilraunameðferðir“ á börnum og sakaði hana um þáttöku í að ofsækja samkynhneigða sem væru ósammála kynjafræðum.