Aðstoðarmaður ráðherra hnýtir í foreldra er biðjast undan hinseginfræðslu

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Í gærkvöldi birti Ingileif Friðriksdóttir ákall í Vísi um að hinsegin meirihluti verði myndaður í Reykjavík. Ingileif er aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar. Keppikefli Ingileifar, líkt og formanns Viðreisnar, er að Miðflokkurinn verði útilokaður sem samstarfsflokkur. Hinsegin og lýðræði eru andstæður.
Ingileif byrjar grein sína með smekklausri aðdróttun í garð foreldra í Vesturbæjarskóla er biðjast undan að barn þeirra sitji kynfræðslu skólans og Samtakanna 78 - og fái að vera á bókasafni skólans í staðinn. Aðstoðarmaður ráðherra skrifar:
Fyrr í mánuðinum bárust fréttir af því að foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hefðu fjarlægt barnið úr skólanum vegna hinseginfræðslu. Að kynnast mismunandi fjölskylduformum og upplifunum fólks er víst of mikil „innræting” að mati sumra.
Foreldrarnir sem um ræðir hafa það eitt til saka unnið að fara þess á leit að kynfræðsla sem samræmist ekki trúarsannfæringu og lífsskoðun fjölskyldunnar verði ekki haldið að barni þeirra. Nútíminn fjallaði um málefni fjölskyldunnar og sagði frá bréfi lögmanns fjölskyldunnar. Já, það þarf lögmann til að foreldrar nái rétti sínum gagnvart hinsegin yfirvaldinu. Í endursögn á bréfinu segir m.a.:
Í fræðslunni er ,,börnunum ítrekað kennt að þau geti verið fædd í röngum líkama og að kyn þeirra sé fljótandi, ákvarðað af samfélaginu eða þeim sjálfum, en ekki líkamlegum þáttum, og að möguleg kyn séu fjölmörg talsins. Brýtur allt þetta gegn trúar- og lífsskoðunum foreldra barnsins, sem telja að kynin séu aðeins tvö og að ekkert sé til sem heiti rangur líkami barns.“
Foreldrarnir telja að fræðslan sé barni sínu hættuleg og til þess fallin að rugla það í ríminu í kynferðismálum og veikja sjálfsmynd þess.
Ingileif aðstoðarmaður ráðherra telur fráleitt að virða óskir foreldra. Allir skuli steyptir í sama hinseginmótið. Ekkert val, ekkert frelsi. Aðeins valdboð að ofan.
Út frá eðlilegri ósk foreldra um að barn þeirra fái að sitja á bókasafni Vesturbæjarskóla á meðan sérviskufræðslu Samtakanna 78 að haldið að nemendum spinnur Ingileif aðstoðar sögu um að Miðflokknum eigi að halda utan meirihlutasamstarfs í Reykjavík.
Líkt og hinseginfólkinu er tamt snýr Ingileif aðstoðarmaður hlutunum á hvolf. Mannréttindi eru að hafa val. Sérviskan um mörg kyn og að sumir fæðist í röngum líkama er fárra en ekki allra. Skólayfirvöld í Reykjavík hafa hingað til virt að vettugi rétt þeirra mörgu en hampað sérvisku Samtakanna 78.