Aðalmeðferð í Edition-málinu svokallaða hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar svarar Ming Ting Mancel til saka, en hún er ákærð fyrir manndráp á þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn.
Hún er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns.
Eiginmaður Mancel og dóttir létust á Edition-hótelinu 14. júní 2025 og hún var handtekin sama dag. Hún sat í gæsluvarðhaldi í 12 vikur vegna rannsóknar málsins.
Rannsóknin teygði sig langt út fyrir landsteinana, allt til eyjaklasans Nýju-Kaledóníu í Kyrrahafi, sem er hluti af Frakklandi.
Fjölskyldufaðirinn hét Emeric Mancel og var 57 ára þegar hann lést. Hann var af frönskum ættum en bjó lengst af í Nýju-Kaledóníu.
Þar kynntust þau Ming Ting, sem er af kínverskum ættum. Hjónin eignuðust saman dótturina Catherine sem hefði orðið þrítug í fyrra.
Samkvæmt fjölmiðlum í Nýju Kaledóníu hafði Mancel-fjölskyldan átt í harkalegum erfðadeilum við ættingja sína fyrir dómstólum í Nýju Kaledóníu og Nýja Sjálandi.
Fréttin var uppfærð.