Að sögn lögreglu fór ökumaðurinn út af brú nærri Sultartangavirkjun. Um umferðaróhapp hafi verið að ræða og Vegagerðin ákveðið að loka fyrir umferð um einbreiðu brúnna. Til stendur að ná steypubílnum upp á morgun en í millitíðinni hefur Landsvirkjun gripið til aðgerða til að minnka vatnsflæði í ánni. Brúin sé nærri virkjuninni en utan þjóðvegarins og almennt sé lítil umferð yfir hana.
„Þeir beina straumnum annað og þá minnkar allur straumur í ánni. Þannig að þeir telja ekki að það sé hætta á að hann fari neitt þangað til á morgun. Svo á morgun þá í rauninni tæma þeir þetta lón, loka fyrir og þá geta þeir náð í bílinn,“ segir Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Ökumaðurinn hafi verið ofkældur. „Hann slapp helvíti vel.“
Var uppi á steypubílnum
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir áhöfn hafa verið reiðubúna á Reykjavíkurflugvelli þegar kallið barst þar sem hún hafi verið að undirbúa sig undir annað útkall.
„Þannig að hún gat brugðist hratt við og var komin á loft um tuttugu mínútur í átta og komin á staðinn um átta mínútur yfir átta. Þar var maðurinn uppi á hlið steypubílsins sem var á hliðinni úti í ánni og sigmaðurinn seig niður til hans og hann var hífður upp í þyrluna.“
Sjúkralið og lögregla hafi sömuleiðis verið kölluð út. Þyrlan hafi síðar lent á Reykjavíkurflugvelli og ökumaðurinn verið fluttur með sjúkrabíl á spítalann til skoðunar.
Fréttin hefur verið uppfærð.