90 námuverkamenn eru látnir og níu er saknað eftir gassprengingu sem varð í Liushenyu-kolanámunni í Shanxi-héraði í Kína í gær. Áður hafði verið greint frá því að átta væru látnir og 38 væri saknað.
Alls voru 247 verkamenn við störf í námunni þegar sprengingin varð. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni en magn kolsýrings er sagt hafa verið yfir mörkum í námunni. Þetta er mesta námuslys í Kína í 17 ár.
Shanxi er eitt fátækasta hérað Kína en jafnframt eitt helsta kolaframleiðslusvæði Kína. Öryggi við námuvinnslu hefur batnað mikið á undanförnum áratugum en slys eiga sér oft stað þar sem öryggisreglum er ekki fylgt.
Kína nýtir allra þjóða mest af kolum og er með mestu losun gróðurhúsalofttegunda, þrátt fyrir að orkuskipti yfir í endurnýjanlega orkugjafa gangi hratt fyrir sig í landinu.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og þeirra sem saknað er.