Áttatíu ára afmæli Hveragerðis var fagnað í dag með fjölbreyttum viðburðum en sérstakir heiðursgestir voru forsetahjónin, sem kynntu sér helstu stofnanir og framkvæmdir í bæjarfélaginu.
Forsetahjónin voru snemma á ferðinni í morgun en þau voru mætt klukkan hálf níu og byrjuðu þá að gróðursetja reynitré í svokölluðum Smágörðum en trén voru sett niður í Höllulundi, sem er rétt við Vigdísarlund þar, sem frú Vigdís Finnbogadóttir hafði frumkvæði að gróðursetningu trjáa árið 2015.
Mikil ánægja var með heimsókn forsetahjónanna í Hveragerði.
„Okkur þótti mjög vænt um það að fá frú Höllu á 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og það var okkur mikill heiður að fá hana til þess að vera hér í dag og heilsa upp á fólkið í tilefni dagsins,” segir Sandra Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar.
Það er mikil uppbygging í Hveragerði.
„Já, mjög mikil, við sjáum byggingakrana hér á hverju horni og mikil uppbygging í atvinnu og innviðum líka þannig að það eru bjartir tímar framundan í Hveragerði. Best við Hveragerði er fólkið og náttúran,“ bætir Sandra við.
Síðan tóku fleiri og fleiri viðburðir við hjá forsetahjónunum en þau fengu m.a. kynningu á Reykjaböðunum, sem verða brátt opnuð og þau heimsóttu líka hjúkrunarheimilið Ás svo einhverjir staðir séu nefndir.
En hvað finnst frú Höllu um Hveragerði, hvers konar bæjarfélag er það í hennar augum?
„Í mínum huga hlýtt, ylurinn ræður ríkjum í Hveragerði. Bæði jarðhitinn, sem bærinn er ofan á, og líka mannræktin, sem hér er og frumkvöðlakrafturinn. Við höfum byggt mikið hérna í Hveragerði og ræktað margt, sem hefur bæði gert þessu samfélagi og Íslandi öllu gott,“ segir Halla.
Sonur forsetahjónanna spilar knattspyrnu með Hamri í Hveragerði.
„Já, þetta er annað árið, sem sonur okkar spilar hérna með Hamri þannig að við erum stundum á hliðarlínunni hérna og í bænum að fylgjast með Hvergerðingum og hvetja þá til dáða“, segir Halla stolt af stráknum.
Þess má geta að afmælisdagskránni er ekki lokið, hún heldur áfram út allt árið með fjölbreyttum viðburðum í Hveragerði.