Um 65.000 hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda í Spokane-sýslu í Washington á vesturströnd Bandaríkjanna. Yfir 700 byggingar hafa eyðilagst í eldunum. Enginn hefur farist eða slasast. Þrír stórir skógareldar loga í Spokane-sýslu, á ríflega 3.000 hektara svæði, sem ekki hefur enn tekist að ná stjórn á.
Ríkisstjóri Washington, Bob Fergusson, telur að þetta séu mestu náttúruhamfarir í sögu Spokane. Ferguson lýsti yfir neyðarástandi á laugardaginn. Hann segir að miklir þurrkar síðastliðin fjögur ár, óvenju hátt hitastig og hvass vindur hafi aukið hættuna á skógareldunum.
CNN segir að slökkviliðsmenn berjist nú við 17 skógarelda á um 106 þúsund hekturum í Washington. Skógareldar loga einnig í Oregon þar sem þeir eru þeir verstu í ríkinu í yfir 30 ár. Þá hafa skógareldar einnig logað í Bresku Kólumbíu í Kanada.
Búist er við að skógareldarnir eigi eftir að valda þoku og hafa áhrif á loftgæði í ríkjunum næstu daga.