Um 50 manns voru handteknir í samræmdri lögregluaðgerð evrópskra yfirvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi á svæðinu kringum Eystrasalt í síðustu viku. Verðmæti upp á rétt um 70 milljónir króna voru haldlögð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. Segir þar að fulltrúi Íslands í aðgerðinni komi frá lögreglunni á Austurlandi. Ennfremur segir í tilkynningunni:
„Alls voru yfir 33 þúsund einstaklingar og 22 þúsund ökutæki stöðvuð og skoðuð. Aðgerðin, EMPACT Trident, beindist meðal annars að eftirliti með flutningi ólöglegra efna yfir landamæri, flutningi fjármuna og annarra verðmæta auk hættulegs úrgangs. Hald var lagt á mikið magn fíkniefna og stolinna muna auk þess sem mál komu upp er vörðuðu peningaþvætti.
Aðgerðin var undir stjórn Svíþjóðar en Danmörk, Finnland, Eistland, Lettland, Litháen, Þýskaland, Noregur og Ísland tóku þátt auk Europol og fjölda stofnana. Fulltrúi Íslands í aðgerðinni kemur frá lögreglunni á Austurlandi sem sinnir m.a. eftirliti við komu farþegaferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðar
Þykir niðurstaðan sýna mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi og að með sameiginlegu átaki, ekki síst með auknu landamæraeftirliti, megi draga úr möguleikum brotamanna á að hagnast og njóta ágóða af brotastarfsemi.“